Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Page 171
— 169 —
1955
í 98056 stundir aðallega við plast-
framleiðslu, trésmíði, járnsmíði,
sauma, skósmíði, skrifstofustörf, heim-
ilisstörf o. fl. Vistmenn voru í ársbyrj-
un 83, 46 komu á árinu, 26 karlar og
20 konur, 46 fóru á árinu. 35 fóru til
vinnu, 11 fóru á hæli eða önnur
sjúkrahús til aðgerða. 6 af þeim 11,
sem fóru á hæli eða spitala, komu hér
smitandi. 2 fóru á Landsspítalann til
lungnaaðgerða, pulmonectomia og seg-
mentresectionar. 1 fór á Landsspítal-
ann til appendectomia. 2 fóru utan til
lungnaskurða fyrra part ársins. 3 kon-
ur fóru til Vifilsstaða samkvæmt eigin
úsk, allar smitfríar. 1 konu versnaði
og varð smitandi. Meðaldvalartími
þeirra, sem fóru, var 1 ár og 9 mán-
uðir. Dvalardagar voru 26271. Veik-
indadagar voru 2,9% af dvalardögum.
Vistmenn voru i árslok 83.
J. Yfirlit uin lyfjabúðareftirlit.
Eftirlitsmaður lyfjabúða gerir svo-
látandi grein fyrir eftirliti með lyfja-
búðum á árinu 1955:
Veiting iyfsöluieyfa á árinu.
Kópavogsapótek, Kópavogi, 23. júli
1955: Aksel Kristensen (f. 24. febr.
1893). Kand. 1921, Kh.
Fjöldi lyfjabúða o. fl. Lyfjabúðir
voru í lok ársins 20 talsins. Bættist
ongin ný við á árinu. Allar voru lyfja-
búðirnar skoðaðar á árinu að einni
undantekinni (sjá siðar).
Starfslið. Starfslið lyfjabúðanna,
fyrir utan lyfsala, var sem hér segir.
Eru tölur miðaðar við dag þann, er
skoðun var gerð á hverjum stað: 20
lyfjafræðingar (cand. pharm., þar af
1 erlendur), 17 karlar og 3 konur, 14
lyfjasveinar (exam. pharm., þar af 5
erlendir), 4 karlar og 10 konur, 5
lyfjafræðinemar, piltur og 4 stúlkur,
og annað starfsfólk 166 talsins, 33
karlar og 133 konur.
Húsakynni, búnaður o. fl. Breyting-
ar og endurbætur á húsakynnum lyfja-
kúða voru með mesta móti á árinu.
f einni lyfjabúð, er áður hafði fengið
allverulegt viðbótarhúsnæði til um-
ráða, var lokið við smíði og búnað
Yinnuherbergja. Er þannig frá öllu
gengið, enda hvergi til sparað, að ó-
tvírætt má telja vinnuherbergi þessi
hin fullkomnustu meðal hérlendra
lyfjabúða, hvað búnað og tilhögun
alla snertir. Ein af eldri lyfjabúðum
höfuðstaðarins fluttist i ný húsakynni
(ekki nýreist þó) á árinu. Á einum
stað var hús lyfjabúðar flutt til í götu
og á nýjan grunn. Var þetta mjög til
bóta, einlcum vegna þess, að hinn nýi
kjallari hússins, sem þannig fékkst, er
vistlegri og hentugri i alla staði en
hinn eldri var. Á þrem stöðum var
lokið við byggingu rúmgóðs geymslu-
pláss, að flatarmáli frá 20—60 m2, og
á einum stað fékk lyfjabúð til umráða
allverulegt viðbótarhúsnæði, og er fyr-
irhugað að koma þarna fyrir vinnu-
herbergjum, sem hefur mjög skort til
þessa. Þá var og loftræsting bætt til
muna í tveim lyfjabúðum, og viða voru
húsakynni máluð að meira eða minna
leyti, gólf dúklögð, miðstöðvarhitun
bætt o. s. frv. Loks var verið að smíða
frystiklefa í tveim lyfjabúðum. Fundið
var að óþrifalegri geymslu hreinsaðra
lyfjaíláta í einni lyfjabúð, á öðrum
stað var átalið, hversu óvistlegt var
um að litast i kjallara, og í þriðja
staðnum var að því fundið, að íláta-
hreinsun lyfjabúðar og einkaþvottur
lyfsala var hvort tveggja framkvæmt
i sama þvottaherbergi.
Áhaldakostur var víða bættur að
nokkrum mun. Ber sérstaklega að
minnast einnar lyfjabúðar í þessu sam-
bandi, en þar var áhaldakostur stór-
lega bættur, enda hafði áhaldaskortur
staðið fyrirtæki þessu fj'rir þrifum
um margra ára skeið. Kæliskápar voru
keyptir á tveim stöðum, töfluvél á
einum, viða voru sérilát endurnýjuð
að einhverju leyti o. fl. o. fl. Þá er og
rétt að geta þess, að einni lyfjabúð
áskotnaðist á árinu mjög afkastamikið
pillugerðartæki (Piluterm), áður ó-
þekkt hér á landi. Er tæki þetta eink-
um ætlað til framleiðslu á vítamín-
pillum.
Þrátt fyrir lofsverða viðleitni lyf-
sala almennt að búa lyfjabúðir sinar
áhaldakosti, er fullnægi kröfum tím-
ans, skortir þó enn mikið á, að við-
unandi árangri sé alls staðar náð í
þessum efnum.
Rannsóknir á lyfjum gerðum í lyfja-
22