Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 172
1955
— 170 —
búðum. Lyfjarannsóknir voru ýmist
framkvæmdar á staðnum, eða þá að
sýnishorn voru tekin og farið með þau
til athugunar, en þá var jafnan skilið
eftir í vörzlu lyfsala innsiglað sýnis-
horn af sams konar lyfi og því, er
tekið var til rannsóknar.
1) Skammtar. Rannsakaðar voru 70
tegundir skammta. Reyndist þungi 67
þeirra vera innan óátalinna þungafrá-
vika lyfjaskrár, en þungi 3 (4,3%)
utan. (1954: 63 innan og 18 utan, eða
22,2%.) Hefur nákvæmni ekki verið
betur gætt undanfarin 8 ár við gerð
skammta en þetta ár.
2) Eðlisþyngdarákvarðanir. Eðlis-
þyngd 197 lausna var mæld. Reyndist
eðlisþyngd 20 þessara lausna (10,2%)
vikja um skör fram hjá réttu marki.
(1954: 26 af 207, eða 12,6%.)
3) Kyrni. Þunga- og rúmmálspróf
voru gerð á 17 tegundum kyrna.
Reyndist þungi 9 tegunda (52,9%)
vera utan óátalinna frávika lyfjaskrár.
(1954: 9 af 22, eða 40,9%.) Tilhlýði-
legrar nákvæmni við gerð kyrna hef-
ur sýnilega ekki verið gætt í ár frekar
en undanfarin ár.
4) Töjlur. Magn virkra efna var á-
kvarðað i 52 töfludeildum. Reyndist
magn virkra efna í þrem þeirra
(5,8%) vera utan óátalinna frávika.
Rannsóknir þessar tóku til eftirfar-
andi töflutegunda:
Tabl. acidi ascorbici Ph.D. (13 deildir)
---------cg 10 (10 deildir)
— cinchopheni Ph.D. (1 deild)
— diemali Ph.D. (1 deild)
—- nicotinamidi Ph.D. (1 deild)
— pentymali Ph.D. (4 deildir)
•— phenemali Ph.D. (2 deildir)
-----minores Ph.D. (3 deildir)
-----cg 5 (2 deildir)
— sulfacombini Ph.D. (4 deildir)
— sulfadiazini Ph.D. (1 deild)
— sulfaguanidini (1 deild)
— sulfamerazini Ph.D. (4 deildir)
— sulfanilamidi Ph.D. (2 deildir)
— sulfathiazoli Ph.D. (3 deildir)
Enn fremur var framkvæmt þunga-
próf á 15 töfludeildum þessum og
þrem til viðbótar, eða samtals á 18
töfludeildum. Reyndist þungi þeirra
allra vera innan óátalinna þungafrá-
vika lyfjaskrár.
5) Augndropar og augndropaglös.
Sævingarpróf var framkvæmt á 18 teg-
undum augndropa. Reyndist gerla-
gróður í 5 (27,8%) tegundum, sums
staðar mikill. Þá var og framkvæmt
sams konar próf á 9 hreinsuðum, tóm-
um augndropaglösum. Fannst gerla-
gróður í 2 (22,2%) glasanna. í tveim
lyfjabúðum þótti ástæða til að finna
að vinnubrögðum i sambandi við
augndropagerð.
6) Stungulyf. Sævingarpróf var
framkvæmt á tveim stungulyfjum.
Stóðust bæði lyfin prófið.
7) Galenskar samsetningar. Magn
virkra efna var ákvarðað i 41 gal-
enskri samsetningu. Reyndist magn
virkra efna vera utan óátalinna marka,
eða víkja um skör fram hjá settum
styrkleika, i 11 samsetningum (26,8%)-
Tóku rannsóknir þessar til neðan-
greindra lyfja, en tölur i svigum gefa
til kynna fjölda þeirra deilda, sem
efnagreindur var. Styrkleika þeirra
samsetninga, sem reyndust utan óátal-
inna frávika, eða víkja um skör fram
hjá réttum styrkleika, er getið hverju
sinni.
Glycerinum jodi Ph.D. (3).
Guttae jodi Ph.D. (1).
Guttae kalii arsenitis Ph.D. (4).
Injectabile ascorbici 5% (5): 4,4%
askorbínsýra.
Injectabile ascorbici 10% (6): 8,8%
og 11,5% askorbínsýra.
Sol. acidi ascorbici 20% (1).
Sol. c. jodo 1 —- Kal. jod. 2 —Aq.
dest. 1 (1).
Sol. Lugoli 1% (2).
Syr. acidi ascorbici 0,25% (9): 0,20
og 0,23% askorbinsýra.
Syr. acidi ascorbici 0,50% (2).
Syr. acidi ascorbici 1,0% (1): 0,75%
askorbinsýra.
Syr. C-vitamini Ph.D. (6): 0,047%>
0,18%, 0,22%, 0,46% og 0,72% askor-
binsýra.
Bækur og færsla þeirra. Bækur þær,
sem lyfsölum er gert að færa, sbr.
augl. nr. 197 19. sept. 1950, um búnað
og rekstur lyfjabúða, voru yfirleitt bet-
ur færðar en tiðkazt hafði til þessa,
þótt mikið skorti þó ehn- á sums stað-