Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 190
1955
188 —
utan íbúðarhús foreldranna. Ekki
vitað um neinn undanfarandi las-
leika. Ályktun: Við krufningu
fundust berkjur fullar af þykku
slími, sem stíflaði þær og hefur
sýnilega hindrað öndun, svo að
barnið hefur kafnað. Þessi svæsna
berkjubólga hefur stafað af strep-
tokokkum.
20. 11. maí. S. S-son, 50 ára. Fannst
liggjandi ölvaður í blóðpolli á
götu i Reykjavik. Andaðist sömu
nóttina í fangageymslu lögregl-
unnar. Ályktun: Við líkskoðun og
krufningu fannst áverki á höfði,
vinstra megin aftan til, og þar var
smásár, sem leit helzt út fyrir að
vera eftir eitthvert verkfæri. Und-
ir þessum stað fannst mikil blæð-
ing innan á beini, milli þess og
heilabasts. í beininu fannst hér
alllöng sprunga, þar sem það var
brotið frá ofanverðu eyra og fram
undir ennisbein. Enn fremur smá-
marblettir neðan á heila beggja
megin. Þrýstingur af blæðingu
milli basts og beins hefur orðið
svo mikill á heila, að maðurinn
hefur beðið bana af því.
21. 13. maí. K. K-dóttir, 77 ára. Varð
fyrir bil og dó svo að kalla sam-
stundis. Ályktun: Við krufningu
fundust mjög miklir áverkar:
Hægri fótleggur þverbrotinn og
stórt sár á legg, sem brotin skög-
uðu út um. Þind var tætt í sund-
ur á stóru svæði frá brjóstvegg,
þannig að mikill samgangur
myndaðist milli brjóst- og kviðar-
hols. Á lijarta var fingurstórt gat.
Lifur og hægra nýra var sundur-
tætt, sprunga í milti og öll rif
brotin báðum megin. Grindarbein
voru einnig brotin. Auðsætt er,
að konan hefur dáið samstundis
af þessum áverkum.
22. 6. júní. S. F. J-son, 52 ára bók-
bindari. Dó skyndilega, án þess
að vitað væri um undangengin
veikindi. Ályktun: Við krufningu
fannst mikið slím og roði í barka-
kýli, barka og berkjum. Við rækt-
un fannst mikill gróður af lungna-
bólgusýklum og inflúenzusýklum.
Hjarta var greinilega þanið. Hinn
látni hefur verið að byrja að fá
inflúenzu og lungnabólgu, seni
hefur tekið hann svo hastarlega,
að leitt hefur til bana.
23. 7. júní. G. G-son, 6 mánaða. Barn-
ið hafði verið veikt af kvefsótt i
10 daga, er það lézt tiltölulega
skyndilega. Ályktun: Við krufn-
ingu fannst mjög mikið slim i
barka og sérstaklega í lungna-
berkjum, bæði hinum stærri og
minni, og fyllti slímið berkjurnar,
svo að útlit er fyrir, að barnið
hafi kafnað, því að önnur köfn-
unareinkenni fundust, svo sem
fljótandi, dökkt blóð og smáblæð-
ingar bæði í hjarta og thymus.
í sliminu fannst hreingróður
lungnabólgusýkla.
24. 21. júní. A. B-son, 30 ára. Var
sjúklingur á Kleppi og fékk frí til
að heimsækja frændfólk sitt norð-
anlands. Er hann kom til baka,
lék hann á als oddi, settist uffi
kvöldið við að skrifa langt bréf,
en að því búnu tók hann upp
byssu og skaut sig í sjúkrastofu
sinni, að viðstöddum sambýlis-
manni sinum. Skaut hann sig fyrst
einu skoti í ennið, en er honuni
varð ekkert verulega um það, hlóð
hann byssuna aftur og skaut sig
á ný, og þá i hægra gagnauga.
Féll hann þá niður og andaðist
litlu seinna. Ályktun: Við krufn-
ingu fannst innskotsop yfir hægra
eyra, og náði skotgangurinn þvert
i gegnum heila, dálítið fram á við
og upp á við, en skotið hafði
ekki farið inn i beinið hinum
megin. Auk þess fannst kúla, seni
sat föst i miðju ennisbeini. Báðar
kúlurnar voru klesstar, og kom
stærð þeirra heim við, að þær
væru úr vanalegri fjárbyssu.
25. 5. júli. S. G. S-son, 60 ára. Fannst
örendur á grúfu uppi í sveit, þar
sem hann hafði verið við smala-
mennsku. Ályktun: Við krufningu
fannst mikil kölkun i vinstri
kransæð, vöðvi vinstra afturhólfs
þykknaður og allmikill bjúgur í
lungum. í nýrum fannst mjög
aukin blóðsókn, bæði nýru stinn
og hörð, og við smásjárrannsókn