Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Page 192
1955
— 190 —
31. 3. september. H. K-son, 29 ára
bílstjóri. Ók bíl austur í sýslu og
kom mjög drukkinn til baka um
nóttina. Fór strax að sofa, en
vaknaði að klukkutíma liSnum
og kvartaSi um mikla vanlíSan
fyrir hjarta. Seinna heyrSi kona
hans dynk og fann hann þá ör-
endan í eldhúsinu. Ályktun: Við
krufningu fannst hægri hjarta-
helmingur útþaninn af storknuðu
blóði, innan um blóðið margir,
langir drönglar, sem sýnilega voru
afsteypur af útlimavenum, og
fundust leifar eftir slíka thromba
i venunni i vinstra læri. Þessir
blóðkökksdrönglar hafa losnaS,
rétt eftir að þeir hafa myndazt,
borizt upp í hægra hjartahelming
og stöðvazt þar, en blóðrás
mannsins hefur verið léleg fyrir
vegna ölvunar. Vanliðan manns-
ins hefur stafað af því, að þessir
kekkir hafa stöðvazt i hjarta, og
að lokum hefur hjartað fyllzt af
blóðstorku, unz það stöðvaðist. 1
lifur fannst mikil fita, sem bendir
til þess, að maðurinn hafi verið
drykkfelldur.
32. 23. september. Þ. C., 75 ára vél-
fræðingur. Fékk skyndilega mik-
inn hjartverk, sem lagði út í
vinstra handlegg. Dó 40 mínútum
seinna. Ályktun: Við krufningu
fannst sprunga á meginæð (aorta)
þannig, að veggurinn hafði rifn-
að, blóð brotizt inn á milli laga
(aneurysma dissecans), borizt þar
töluverðan spotta á milli laga,
brotizt þaðan aftur inn í sömu
æð, en jafnframt hafði það rutt
sér leiö til gollurshúss, sprungið
inn í það og fyllt það. Hefur það
valdið skjótum bana. Auk þess
fundust menjar um gamla berkla
i hægra lunga og mikil skemmd í
vinstra nýra (eftir infarkta), en
hægra nýra skorpið af gamalli
berklaveiki. Með smásjárrannsókn
fannst arterio- og arteriolosclero-
sis i vinstra nýra.
33. 24. september. E. S.-son, 53 ára
prestur. Lenti í bílslysi og fór
upp úr því að verða mæðinn. Var
fluttur í sjúkrahús að viku lið-
inni, er hann varð skyndilega
máttlaus í báðum fótum og hné
niður á götu. Versnaði smám sam-
an i sjúkrahúsinu og dó, eftir að
hann hafði legið þar i næstum 3
mánuði. Ályktun: Við krufningu
fannst stór blóðkökkur i lungna-
slagæð, og lokaði hann báðum
aðalgreinum hennar. Var sýnilegt,
að hin vinstri hafði lengi verið
lokuð, en hin hægri hefur að
miklu leyti verið lokuö, þangað til
nýlega, að hún hefur einnig lok-
azt. Er sýnilegt, að mæði manns-
ins hefur stafað af þessari lokun
á lungnaslagæðinni. Enn fremur
fundust leifar eftir blóðkökk og
blóðkökkur i vinstri lærvenu (v.
femoralis); lítur út fyrir, að þar
hafi blóðkökkur losnað og borizt
til lungans. Sennilegt er, að blóð-
kökkurinn hafi veriö byrjaður að
myndast, áður en maðurinn varð
fyrir bílslysinu, en eftir bílsIysiS
er sennilegt, sbr. verkinn, seni
hann fær þá i vinstra læri, aS
æðin í vinstra læri hafi þá stíflazt
og blóðkökkurinn borizt þaðan
upp í lungu og manninum hafi
versnað stórkostlega við það.
34. 27. september. S. S-son, 65 ára.
Leiö út af í strætisvagni og var
þegar örendur. Ályktun: Við
krufningu fannst alger lokun á
hægri kransæð, og sömuleiðis var
önnur aðalgrein vinstri kransæð-
ar lokuð af gömlum blóðkekki,
sem hafði alveg stiflað æðina.
Þetta hefur valdið skyndilegum
dauða.
35. 27. september. A. J. S-dóttir, 48
ára. Fékk skyndilega mikla kvöl
fyrir hjarta að næturlagi. Verk-
irnir liðu frá, og morguninn eftir
fór konan í bíl til Keflavíkur og
kom aftur um kvöldiö, en var þá
svo aðframkomin, að hún gat rétt
dregizt inn í húsið og beina leið
upp i rúm. Þegar næturlæknir
kom klukkutima seinna, var kon-
an látin. Við krufningu fannst
enginn sjúkdómur, sem útskýrt
gæti dauða konunnar. Ekkert á-
berandi athugavert við hjarta eða
æðar þess, og smásjárrannsókn