Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Page 205
— 203 —
19S5
Tafla IV. Samanburður á mannslátum alls og dauðaslysum á
körlum og konum á íslandi á aldrinum 1—40 ára
Dánir alls að meðaltali á árí Þar af dánir af Blys- fðnun % dáinna af elys- förum Dánir að meðaltali á ári af öðru en slysförum
1946-50 | £arlar | Jvonur 110,6 44,8 40,5 65,8
62,6 10,2 16,2 52,4
1951-53 | *arlar \ Konur 88,0 42,0 47,7 46,0
46,3 6,0 12,9 40,3
karlar og konur í einu lagi. Eins og
við mátti búast, koma í ljós nokkrar
sveiflur á íslenzku tölunum, þegar
tímabilin eru borin saman, og er ó-
samræmið einna mest í aldursflokkn-
um 10—14, þar sem slys valda einungis
28,3% mannsláta í þeim aldursflokki
á fyrra tímabilinu, en 45,5% á hinu
siðara. Skal þvi til skýringar gerð
grein fyrir þessum mun. Á fyrra tíma-
bilinu verða að meðaltali 2,6 dauða-
slys á ári í aldursflokknum, en alls
deyja að meðaltali 9,2 á ári. Á síðara
tímabilinu verða að meðaltali 1,67
dauðaslys á ári, en alls deyja að með-
altali aðeins 3,67 á ári. Nú er munur
á meðaltali dauðaslysa lítill fyrra og
siðara tímabilið, einungis 0,93 á ári,
en hins vegar allmikill á heildardán-
artölu, eða 5,53 að meðaltali á ári.
Slysadánartalan lækkar að vísu, en
heildardánartalan þó hlutfallslega
miklu meira, og það veldur aftur
hærri hundraðstölu.
í stærri aldursflokkunum, 1—14 og
1—19, eru sveiflur óverulegar, og eins
9g sjá má, eru hundraðstölurnar fyrir
ísland með þeim hærri á töflunni.
Rösklega þriðja hvert barn, sem deyr
á íslandi á aldrinum 1—Í4 ára, lætur
lífið af slysförum.
Feitt letur á töflunni táknar, að slys
séu algengasta dánarorsök í þeim ald-
ursflokki, og helzt það í nokkrum
löndum, þar á meðal á íslandi, allt
frá 1 árs aldri og fram að fertugu.
Tafla III svarar til dálks 2 á töflu I,
en hér eru dauðaslys reiknuð sér i
hverjum aldursflokki og auk þess fyrir
hvort kyn. Tölurnar í fremsta dálki
eiga við alla aldursflokka samanlagða,
karla sér og konur sér. Af þessari
töflu sést, hve slysadauði er yfirleitt
miklu algengari á körlum en ltonum,
einkum eftir 5 ára aldur, og þessi
munur er einna mestur á íslandi.
Á þvi tímabili, sem hér ræðir um,
deyja fleiri karlar á öllum aldri af
slysförum hér á landi en í nokkru
hinna landanna, í hlutfalli við mann-
fjölda, og í eftirtöldum einstökum
aldursflokkum er ísland hæst: á 1. ári,
5—9, 15—19, 25—29, 30—34, 35—39,
40—44, 45—49 og 55—59. Um konur
gegnir allt öðru máli. ísland er lægst
í þessum aldursflokkum: 5—9, 15—19,
30—34, 40—44, 50—54 og 55—59. Til
þess að gera nánari grein fyrir þessu,
skulu hér teknar raunverulegar dánar-
tölur, þ. e. meðaltal á ári, á aldrinum
1—40 ára fyrir timabilin 1946—1950
og 1951—1953.
Árin 1946—1950 deyja alls að með-
altali á ári á aldrinum 1—40 ára 110,6
karlar, þar af 44,8, eða 40,5%, af slys-
förum. Á sama tíma deyja alls að
meðaltali á ári í þessum aldursflokki
62,6 konur, þar af 10,2, eða 16,2%, af
slysförum.
Árin 1951—1953 deyja alls að með-
altali á ári á aldrinum 1—-40 ára 88,0
karlar, þar af 42,0, eða 47,7%, af slys-
förum. Á sama tíma deyja alls að
meðaltali á ári í þessum aldursflokki
46,3 konur, þar af 6, eða 12,9%, af
slysförum.
Til þess að leggja aukna áherzlu á
þessar tölur, verða þær settar í töflu.
Á töflu V eru slys flokkuð eftir or-
sökum samkvæmt miðskrá Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar yfir sjúk-
dóma, áverka og banamein, og var sú