Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 211
Viðbætir.
Læknaráðsúrskurðir 1957.
1/1957.
SýslumaíSur i Árnessýslu hefur með
bréfi, dags. 19. nóvember 1956, sam-
kvæmt úrskurði, kveðnum upp á
aukadómþingi Árnessýsiu 12. s. m.,
leitað umsagnar læknaráðs i aukadóm-
þingsmálinu nr. 17/1953: B. Þ. M. M-
son gegn Fosskraft og Sogsvirkjun.
Málsatvik eru þessi:
Aðfaranótt hins 21. febrúar 1952,
um kl. 1.15 til 1.30, var B. Þ. M. M-son,
. .., Reykjavík, að vinna í jarðgöngum
við virkjun írafoss við Sog í Árnes-
sýslu. Var hann ásamt vinnufélaga
sínum að veita grjóti niður um að-
rennslisgöng, sem lágu að stöðvarhúsi.
Stífla mun hafa komið í göngin og
hrúga af grjóti safnazt ofan á efra
opið. B. stóð á hrúgu þessari, þegar
grjótið losnaði skyndilega undan fót-
um hans, og hann hrapaði niður í
göngin. Grjótskriða rann á eftir B.,
og varð hann undir skriðunni og
grófst á 9—10 metra dýpi, að því er
lionum var tjáð. B. náðist upp úr göng-
unum eftir rúmar 7 klukkustundir.
í málinu liggja fyrir þessi læknis-
vottorð:
1. Vottorð ... [læknis], dags. 1.
september 1952, en þar segir svo að
loknum inngangsorðum:
„B. hefur verið sjúklingur síðan
[slysið varð], þar sem hann varð
fyrir mikilli tognun i vinstri öxl og
sér í lagi í baki. Einnig á hann erfið-
ara með svefn en áður, og sækja að
honum erfiðar hugsanir og ofsjónir
um slys og lifshættu. Læknismeðferð
hefur verið heit böð, ljós og nudd.
Ástand sjúklingsins nú: Hann er enn
þá algerlega óvinnufær og verður svo
um ófyrirsjáanlegan tima.“
2. Vottorð . .. [sérfræðings í lyf-
lækningum], dags. 24. september 1952,
en það hljóðar svo að loknum inn-
gangsorðum:
„Segist slasaði hafa vitað lítið af
sér, er hann var grafinn upp, en rank-
aði fljótt við sér. Var hann fluttur á
Landspitalann og þaðan heim til sín.
Samkv. vottorði . .., læknis á hand-
læknisdeild Landspitalans, dags. 5.
marz 1952, en . .. [læknirinn] sá slas-
aða 22. febrúar 1952, voru mikil eymsli
og sársauki við hreyfingar i vinstri
öxl, húðhrufl og mikið mar á báðum
síðum. Sjúkdómsgreining hans: Con-
tusiones variae, distortio articula-
tionis humeri sin. (mar hingað og
þangað, tognun í vinstri axlarlið).
Teknar voru röntgenmyndir í Land-
spitalanum 25. febrúar 1952 af vinstri
öxl og brjóstholi, og sást þá ekkert
athugavert. Hinn 28. marz 1952 var
enn tekin mynd af vinstri öxl i Land-
spitalanum, og sást ekkert athugavert.
Siðan slysið vildi til, hefur slasaði
ekki unnið vegna verkja og eymsla í
vinstri öxl og mjóbaki. Við skoðun i
dag telur hann sig enn óvinnufæran.
Kvartar um eymsli og verki í mjóbaki,
bæði i hvíld, en þó einkum við hreyf-
ingar, svo og verki i vinstri öxl og
máttleysi i axlarvöðvum. Slasaða
finnst hann vera orðinn „slæmur á
taugum“ eftir slysið, finnst hann oft
vera að hrapa, fær martröð og verður
mjög tíðhugsað til slyssins og alvar-
legra slysa yfirleitt.
Skoðun 15. september 1952: V. öxl:
Dálitill stirðieiki er i öxlinni, en hægt
er þó að hreyfa hana til fulls passivt.
27