Studia Islandica - 01.06.1967, Qupperneq 56
54
og í 23. kap. Fóstbræðra sögu. Esja heldur Búa, sekan skóg-
armann, á laun og lætur bera sorp á elda til að gera reyk og
remmu, þegar rannsaka á hús hennar. Gríma leynir Þor-
móði, sekum skógarmanni, lætur hera sorp á eld og verða
mikinn reyk, þegar rannsaka á bæ hennar. Báðar færast
undan, að fjölmenni gangi inn til rannsóknar. í Kjalnesinga
sögu er síðan þannig sagt frá m. a.: váru húsin full af reyk
ok af svá mikilli remmu . .. en þeir váru þó miklu skemr inni
ok fóru óvíðara ok forvitnuðust færa en þeir mundu, ef nökk-
urum væri inni vært.“ 1 Fóstbræðra sögu segir hins vegar:
„Rammt var í húsunum af reyk, ok váru þau heldr skemr
inni en þau myndi, ef reyklaust hefði verit.“ Vert er athug-
unar um þessa atburði, að Búi er ekki falinn í bæ Esju, held-
ur annars staðar, svo að hún virðist ekki hafa ríka ástæðu til
athafna sinna. Þess má einnig geta, að þeir Búi og Þormóður
fá báðir augnaverk af völdum fjölkunnugrar konu, þótt ekki
sé í sama skyni gert. Auk þess má benda á, að í 3. kap. Kjal-
nesinga sögu segir frá því, að Búi vildi aldrei blóta og kvað
„lítilmannligt at hokra þar at“, en í 3. kap. Fóstbræðra sögu
er sagt um Þorgeir Hávarsson, að hann teldi „þat vera sví-
virðing síns krapts, at hokra at konum.“
Einkum er athugandi, að Esja tefur leitina, en þessu atriði
er í rauninni ofaukið í Kjalnesinga sögu. Þetta kann því að
benda til kunnugleika á Fóstbræðra sögu. Sjá 2.19.
Fóstbræðra saga er eitt þeirra rita, sem Haukur hefur
ritað og látið rita í Hauksbók. Jón Jóhannesson hefur enn-
fremur bent á, að í Sturlubók Landnámu sé faðir Hávars
talinn Narfi, en í Hauksbók Kleppur, eins og í Fóstbræðra
sögu.1
4.6. Laxdæla saga. Jóhannes Halldórsson segir svo:2
„Finna má smávægilega líkingu með orðum og orðalagi í
Kjalnesinga sögu og Laxdælu. „Hvergi mun ek leiða þik;
far þú vel,“ segir Fríður við Búa að skilnaði þeirra. Að sögn
1 Jón Jóhannesson 1941, 188-189.
2 Kjalnesinga saga 1959, xiii.