Studia Islandica - 01.06.1967, Page 101

Studia Islandica - 01.06.1967, Page 101
99 EXCURSUS n. UM KELTNESK ÁHRIF 9.0. I grein sinni um keltnesk atriði í íslenzkri geymd hefur Einar Ól. Sveinsson greint að tvo flokka keltneskra sagnaatriða eftir því, hvemig þau hafi borizt til Islands. Annars vegar em þau atriði, sem hafa borizt óbeint með fornfrönskum eða miðaldalatneskum bókmenntum. Hins vegar em atriði, sem hafa borizt frá nýlendum norrænna manna fyrir vestan haf eða með Keltum, sem settust að á Islandi.1 Að sjálfsögðu er oft torvelt að greina þessa flokka að, og má nefna hér þrjú dæmi um það. Brynjubænir eru upprunnar á írlandi. Gearóid S. Mac Eoin hefur rakið náin líkindi írskra og íslenzkra brynju- bæna og gerir ráð fyrir, að þær hafi borizt frá írlandi eða Skotlandi til íslands í munnlegri geymd.2 En Jakob Bene- diktsson hefur síðar bent á, að í íslenzku handriti frá 16. öld sé brynjubæn á latinu. Niðurstaða hans er sú, að brynju- bænir hafi borizt til íslands á latínu, ef til vill frá Bret- landseyjum.3 1 Landnámu segir: „Olvir Barnakarl het madr aagætr i Noregi. hann var vikingr mikill. hann let eigi hennda baum aa spióta oddumm sem þa var vikingum titt. þui var hann barnakarl kalladr.“ 4 Halldór Hermannsson bendir á, að hið sama komi fram í Friðþjófs sögu, en þar kveðst Friðþjófur í kuflmannsgervi hafa heitið: „Helþjófr er ek henta smábörn- um.“ 5 En þetta kemur fyrir á einum stað enn. I Hákonar sögu Hákonarsonar segir í texta Codex Frisianus: „Um svm- arit aðr komv bref vestan af Suðreyiom fra konvngom ok kærðo þeir miog vm þann ofriþ er jarlinn af Ros ok Kiarnakr son Makamals ok aðrir Skotar hofðo gert a Suðreyiom. þa 1 Einar Ól. Sveinsson 1959, 10-12, 12 og áfram, sjá einnig 23. Um ævintýri, Einar Ól. Sveinsson 1929, lxii. 2 Gearáid S. Mac Eoin 1965, 143-154. 3 Jakob Benediktsson 1965, 695-696. 4 iMndnámabók 1900, 226, einnig 119. 5 Halldór Hermannsson 1920, 3.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.