Þjóðmál - 01.03.2020, Side 5

Þjóðmál - 01.03.2020, Side 5
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 3 Ritstjórnarbréf Með ömmu í tölvunni og Helga Björns í stofunni Móðuramma mín, rétt rúmlega áttræð, býr á dvalarheimili utan Reykjavíkur. Ég hef alltaf verið náin ömmu og margar af mínum bestu æskuminningum eru frá heimili ömmu og afa. Samskiptin við hana hafa því verið dýrmæt og á síðari árum, þá sérstaklega eftir að amma fór á dvalarheimili, hef ég reynt að heimsækja hana reglulega. Hver heimsókn er þess virði og í raun eru þær aldrei nógu margar. *** Í nokkrar vikur hefur ekki verið mögulegt að heimsækja dvalarheimilin og þegar þessi orð eru rituð er ekki vitað hvenær það verður hægt aftur. Allir þurfa að sýna því skilning. Það hefur eflaust reynst mörgum erfitt að geta ekki hitt sína nánustu um páskana en sem betur fer hafa flest okkar farið að ráðum þríeykisins Víðis, Ölmu og Þórólfs, sem standa vaktina á meðan kórónuveiran gengur yfir. *** Frá því að samkomubannið var sett á hefur tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson, í samstarfi við Sjónvarp Símans, haldið tónleika heima í stofu á hverjum laugardegi og fengið til sín marga góða gesti. Hann og þeir sem að þessum viðburðum standa eiga mikið hrós skilið. (Mynd: Aðsend).

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.