Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 7
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 5
Við getum því verið þakklát fyrir þær miklu
tæknilegu framfarir sem hafa orðið á liðnum
árum, þær gera stöðuna öllu betri. Aldrei
fyrr hafa verið jafn margir möguleikar á að
dvelja lengi heima hjá sér en vera á sama
tíma tengd umheiminum, geta átt í nánum
samskiptum við sína nánustu og um leið
notið þeirra afþreyingarmöguleika sem hér
voru nefndir.
***
Það verður ekki sagt nógu oft hversu mikil-
vægar framfarir verða í frjálsum samfélögum,
hvort sem það eru tækniframfarir, þróun í
heilbrigðismálum, samgöngum, menntun, á
vinnumarkaði og þannig mætti áfram telja.
Við erum sífellt að leita leiða til að gera lífið
betra og einfaldara – og okkur gengur
nokkuð vel á þeirri braut.
***
Nú höfum við tækifæri til að sinna framförum
í samskiptum og nánd við okkar nánustu.
Fyrir fjölskyldur með börn og unglinga getur
þessi tími líka reynst dýrmætur. Væntanlega
hafa margir dustað rykið af spilunum sem
sitja upp í skáp, göngutúrarnir eru fleiri en
áður, börnin telja bangsa í gluggum hverfisins
og samveran er með öðrum hætti en hún er
dags daglega.
***
Það hefur líka verið dýrmætt að fylgjast með
samheldni þjóðarinnar í þessum aðstæðum.
Langflestir fara að tilmælum og hlýða Víði,
við njótum þess þegar tónlistarmenn streyma
frá tónleikum heima úr stofunni hjá sér,
skemmtikraftar deila efni á netinu, veitinga-
staðir sýna útsjónarsemi með því að bjóða
upp á heimsendingu á mat og önnur fyrirtæki
eru fljót að bregðast við og gera viðeigandi
ráðstafanir til að halda starfsemi sinni áfram.
***
Næstu vikur, og jafnvel mánuðir, kunna að
reynast mörgum erfiðir. Við vitum ekki
hvenær lífið verður eðlilegt á ný, en við vitum
að hverju við göngum þegar það gerist. Það
muna reyna á þolinmæði allra, það mun reyna
á heimilisbókhaldið og það mun reyna á
rekstur fyrirtækja. Þá er ágætt að búa í því
hagsældarríki sem Ísland er.
***
Líklega eru allir sammála um mikilvægi þess
að fara saman í gegnum þessar aðstæður
með sem bestum hætti. Við viljum gæta að
þeim sem eldri eru og sérstaklega útsettir
fyrir kórónuveirunni, við viljum að börnin
upplifi öryggi, við viljum eiga þess kost að
sækja vinnu, hitta fjölskyldur, fara á íþrótta-
leiki og sinna öllu því sem við erum vön að
sinna. Í stuttu máli, allir vilja eðlilegt líf á ný
og til þess að svo megi verða leggjum við
það á okkur að fara í gegnum þetta tímabil
með því að vanda okkur.
***
Í þessum ritstjórnarpistli Þjóðmála er brugðið
út af vananum og ekkert fjallað um stjórnmál.
Sumir hlutir í lífinu eru líka mikilvægari en
stjórnmál.
Gísli Freyr Valdórsson
Næstu vikur, og jafnvel mánuðir, kunna að reynast mörgum erfiðir. [...] Það muna
reyna á þolinmæði allra, það mun reyna á heimilisbókhaldið og það mun reyna á
rekstur fyrirtækja. Þá er ágætt að búa í því hagsældarríki sem Ísland er.