Þjóðmál - 01.03.2020, Side 28

Þjóðmál - 01.03.2020, Side 28
26 ÞJÓÐMÁL Vor 2020 nýsköpunar mælikvarðans (e. Global Inno- vation Index), sem gefinn er út af Alþjóða- hugverkastofnuninni (e. World Intellectual Property Organization, WIPO), leggja áherslu á að byggja upp öflugt stuðningsumhverfi fyrir rannsóknir og þróun. Þá sjáum við jafnframt sérstakan stuðning við einstakar atvinnugreinar. Dæmi um slíkt er endurgreiðslu kerfi tölvu- leikjaiðnaðar í Bretlandi, en fyrirtæki sem þróa tölvuleiki geta fengið 20% endurgreiðslu á framleiðslukostnaði tölvuleikja þar í landi. Í Kanada er gengið enn lengra og boðinn allt að 50% skattafsláttur af starfsmannakostnaði við þróun tölvuleikja, eða 25% af heildarfram- leiðslukostnaði, eftir því hvor talan er lægri. Færa má rök fyrir því að opinber stuðningur við rannsókna- og þróunarstarf fyrirtækja sé fjárfesting í verðmætasköpun framtíðar. Útgjöld ríkisins vegna þessa stuðnings skila sér til baka í formi stærri skattstofns en ella, en sýna má fram á það á nokkuð einfaldan máta að slík fjárfesting skili fleiri krónum í ríkiskassann en sem nemur útlögðum kostnaði ríkisins. Nýleg könnun og greining Samtaka iðnaðarins á áhrifum af tvöföldun endurgreiðsluþaksins hér á landi árið 2019 staðfestir þetta. Fyrirtæki sem nýta sér endur- greiðslurnar hafa aukið umsvif og fjölgað verkefnum. Mörg dæmi eru um nýráðningar sem rekja má til hækkunar þaksins. Réðust fyrirtæki gjarnan í ný verkefni og settu almennt aukinn kraft í þróun á vörum og þjónustu. Íslenska ríkisaðstoðarkerfið sem felst í lögunum frá 2009 til rannsókna- og þróunar- verkefna fellur undir reglugerð Evrópu- sambandsins um hópundanþágur frá þeirri meginreglu að ríkisaðstoð við viðskipta- starfsemi sé óheimil. Viðurkennt er að ríkis- aðstoð geti verið nauðsynleg til að standa vörð um innlend stefnumið, svo sem markmið um eflingu nýsköpunar. Enn er til staðar heil- mikið svigrúm fyrir Ísland til að hækka þök á endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar miðað við viðmið hópundanþágunnar. Skynsamlegt væri því að halda áfram á þeirri vegferð að hækka þökin. Það mun hafa jákvæð áhrif á ákvarðanir íslenskra hugverka- og tæknifyrirtækja um hvar þau staðsetja og stækka rannsóknar- og þróunarverkefni og þar með stuðla að því að afrakstur nýsköpunar leiði til verðmætasköpunar hér á landi með tilheyrandi fjölgun starfa og útflutningstekjum. Hvatar til fjárfestinga í sprotafyrirtækjum Með sérstökum nýsköpunarlögum árið 2016, þar sem fyrrgreind þök á endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar voru hækkuð, voru jafnframt innleiddar skattaívilnanir fyrir einstaklinga sem fjárfesta í fyrirtækjum sem uppfylla ýmis skilyrði. Þau voru meðal annars að hjá félaginu störfuðu ekki fleiri en 25 starfs menn og að árleg velta væri ekki meiri en 650 m.kr. Með öðrum orðum giltu lögin um fjárfestingar í sprotafyrirtækjum. Sá hængur var hins vegar á þessari laga- setningu að skilyrði hennar, ýmis önnur en hér eru talin upp, voru of þröng. Á tímabilinu 2016 til 2018 nýttu einungis örfá fyrirtæki ákvæði laganna til að laða að fjárfestingu. Fjármála- og efnahagsráðherra lagði því fram breytingar á ákvæðum laganna á haust- mánuðum 2018 og tóku þær gildi í janúar 2019. Þær eru jákvæðar og vonandi til þess fallnar að fleiri fyrirtæki geti nýtt sér þessi ákvæði. Skilyrðin voru rýmkuð og sum hver felld út. Skattafslátturinn er allt að 50% og reiknast frá tekjuskattstofni einstaklings að viðbættum fjármagnstekjum. Það munar um minna. Þátttaka almennings í fjárfestingu í atvinnulífi er hlutfallslega fremur lítil á Íslandi í samanburði við önnur lönd. Þetta er áhyggju efni. Allt sem stjórnvöld geta gert til að styðja við auknar fjárfestingar í fyrirtækjum sem eru í vexti og þarfnast fjármagns mun styðja við fjölgun arðbærra fyrirtækja og starfa í framtíðinni.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.