Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 66
64 ÞJÓÐMÁL Vor 2020
1. Settu þér tímamörk
Fyrsta atriðið og eitt það mikilvægasta er
að setja sér tímamörk. Að ákveða hvenær
þú ætlar að vinna, hvenær þú tekur pásu
og hvenær þú ætlar að hætta að vinna. Þótt
maður sé heima hjá sér þurfa hefðbundnir
vinnutímar ekki að breytast, þótt þeir
eðlilega verði sveigjanlegri. Góð regla er að
skipuleggja daginn eins og hvern annan eðli-
legan vinnudag sem hægt er að bregða út
af við einstaka aðstæður. Byrja t.d. að vinna
klukkan 8.00 og hætta vinnu á slaginu 16.00.
2. Búðu til morgunrútínu
Eitt það erfiðasta sem ég upplifði þegar ég
hóf störf í fjarvinnu var að vakna á morgnana
og byrja að vinna. Það er auðvelt að vera
góður við sjálfan sig og leyfa sér að sofa
aðeins lengur eða vera aðeins lengur í
símanum eða tölvunni kvöldið áður. Leiðin
til að sigrast á þessu er að búa til góða og
skipulagða rútínu. Að vakna snemma, fara
í sturtu og klæða sig í vinnufötin, hella upp
á kaffi og fá sér morgunmat meðan maður
les fréttirnar. Þetta er einföld rútína en gerir
kraftaverk við að koma sér í vinnugírinn.
3. Taktu þér pásu og notaðu þann tíma vel
Allt of oft hef ég staðið sjálfan mig að því að
festast í vinnumálum og sitja klukkustundum
saman við tölvuna og gleyma öllu í kringum
mig. Það er gott að temja sér ákveðna tíma
fyrir pásu yfir daginn til að slaka aðeins á og
endurheimta einbeitinguna. Það er venjan í
Bandaríkjunum að taka klukkustundar
hádegishlé og tvö 15 mínútna hlé yfir
daginn. Fyrir þá sem eiga erfitt með að gera
þetta eru til mismunandi snjalllausnir eins og
t.d. TimeOut fyrir Mac eða SmartBreak fyrir
Windows sem læsa mann út úr tölvunni og
passa að maður taki þessar pásur sem maður
hefur lofað sjálfum sér.
4. Haltu skipulögðu vinnurými
Í fullkomnum heimi væru allir heimavinnandi
með tvær tölvur, aðra fyrir persónulega notkun
og hina fyrir vinnuna, það er góð leið til að
aðskilja vinnuna frá einkalífinu. En fáir lifa við
þann lúxus. Það sem fæstir hafa er skrifstofa
til að vinna í heima hjá sér. Það sem er hægt
að gera í staðinn er að tileinka ákveðið svæði
á skrifborði og uppsetningu sem segir að
þú sért mættur til vinnu. Gott ráð er að setja
vinnu aðstöðuna upp á þann hátt að þér líði
eins og þú sért að vinna, til dæmis að tengja
skjá og lyklaborð við fartölvuna.
5. Notaðu skipulagsforrit
Það tók mig smá tíma að skipta minnisblöðum
út fyrir skipulagsforrit, en ef ég hefði áttað
mig á því fyrr hversu mikilvæg þau eru fyrir
dagleg afköst hefði ég tamið mér það fyrir
löngu. Það forrit sem ég mæli með heitir
Todoist og er hægt að hlaða því niður í bæði
tölvu og síma.
Við lifum á tíma sveigjanleika. Þessi þróun
fjarvinnu í COVID-19 ástandinu hefur aðeins
flýtt fyrir breytingum sem hafa verið lengi
í þróun og eru óhjákvæmilegar. Það ætti
að taka þessum breytingum með opnum
örmum og aðlaga þann rekstur og störf
sem hægt er við fyrsta tækifæri. Rétt eins
og iðnvæðingin gjörbreytti heiminum hefur
tæknivæðingin gert hið sama. Fjarvinna
er aðeins einn liður í þróun nútímans til
framtíðar.
Höfundur er verkefnastjóri hjá
Students of Liberty.