Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 97
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 95
„Lestir eru verk sem skaða gerendurna sjálfa
eða rýra eignir þeirra. Glæpir eru verk sem
skaða aðra en gerendurna eða rýra eignir
þeirra.“
Þetta segir Lysander Spooner í upphafi
bókar innar Löstur er ekki glæpur í þýðingu
Tómasar Brynjólfssonar. Þetta eru skilgrein-
ingar sem allir ættu að skilja og virða. Þetta
er auðveldur sannleikur. Það er sjálfsagt að
einstaklingur geri það sem hann vill svo lengi
sem hann skaðar ekki aðra.
Ég er dyggur stuðningsmaður einstaklings-
frelsis. Margir flokksfélagar mínir eru á því
máli að einstaklingsfrelsi skipti öllu máli, upp
að marki. Flestir íslenskir stjórnmálamenn eru
fylgjandi einstaklingsfrelsi, þó aðeins í orði,
því hvað eftir annað hefur ríkið með laga-
setningum takmarkað eða hindrað fram-
kvæmd einstaklings innan þess frelsis sem
hann hefur með sjálfræði sínu.
Forræðishyggja virðist ráða ríkjum innan
íslenskra stjórnmálaflokka og þeir treysta
ekki hinum almenna borgara til þess að
ráðstafa sínu eigin lífi eftir sínum vilja. Það er
sorglegt að hinir löngu armar ríkisvaldsins fái
að teygjast enn lengra við hvert tækifæri og
með því tilheyrandi kostnaður sem bitnar á
skattgreiðendum.
Lestir einstaklinga eru margvíslegir og sumir
þeirra eru skilgreindir sem glæpir, þó að
fjarvera glæpsamlegs ásetnings eigi við um
þá flesta. Rétt eins og Lysander segir:
„Þeir sem lifa lastalífi gera það sér til ánægju
en ekki af meinfýsni í garð annarra.“
Lestir eru persónugallar einstaklinga, þeir
eru allir skyldir við dauðasyndirnar sjö, hroka,
öfund, reiði, leti, ágirnd, ofát og munúðlífi.
Mér sem ungum sjálfstæðismanni þykir það
miður að við kjósum að refsa, beita ofbeldi
og frelsissvipta fólk því það hafi látið freistast
til þess að láta undan löstum sínum. Á sama
tíma fá einstaklingar með aðra lesti jákvæða
athygli, umfjöllun og hrós því lestir þeirra eru
samþykktir af samfélaginu.
Ég vil sjá breytingar gerðar á dómskerfinu og
ég vil aukið frelsi einstaklingsins – því löstur
er ekki glæpur.
Höfundur er formaður Týs, Félags ungra
sjálfstæðismanna í Kópavogi.
Páll Gestsson
Löstur er ekki glæpur
Löstur er ekki glæpur kom út í íslenskri þýðingu Tómasar
Brynjólfssonar.
Ungliðahreyfingin