Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 96
94 ÞJÓÐMÁL Vor 2020
Um leið og minnst er á áfengislög stökkva
menn til, oftar en ekki í popúlískum tilgangi,
og spyrja sem svo oft áður hvort málið sé í
forgangi. Umræðan sem farið hefur fram um
þetta mál hefur verið mismálefnaleg og ekki
alltaf á rökum reist. Frumvarp til breytinga
á áfengislögum hefur verið í vinnslu í
dómsmálaráðuneytinu um nokkurt skeið
og bíður málið nú afgreiðslu, eins og fjöldi
annarra mála sem ráðuneytið hefur lagt fram.
Upptalning þeirra myndi gera þessa grein
langdregna.
Það hefði vakið furðu ef einhver hefði staðið
upp og hrópað „Er þetta í forgangi núna?“
þegar Mannréttindasáttmáli Evrópu (MSE)
var lögfestur á Íslandi 1994, í stjórnartíð
Davíðs Oddssonar. Hefðum við átt að bíða
með að taka brautryðjandi skref í átt að
auknum mannréttindum og frelsi borgaran-
na, því önnur mál voru í deiglunni?
Spurning sem þessi er lituð af hentistefnu og
er einungis til þess að slá ryki í augu fólks og
forðast málefnalega umræðu, í hvaða máli
sem er.
Einkaréttur ÁTVR til innflutnings á áfengi var
afnuminn árið 1995. Hafa Íslendingar síðan
getað keypt áfengi í verslunum erlendis og
látið senda það heim til Íslands. Núverandi
fyrirkomulag felur þá í sér ójöfn tækifæri
innlendrar og erlendrar verslunar, sem
takmarkar valkosti almennings og skerðir
samkeppnishæfni innlendra framleiðenda,
sem hafa leitað út fyrir landsteinana með
starfsemi sína.
Hér er rétt að taka fram að aukið jafnræði
milli íslenskra og erlendra fyrirtækja á
áfengis sölumarkaði er ekki nærri því jafnstórt
skref og lögfesting MSE. Megininntakið er
það að menn ættu að fagna því að lögfest
séu ákvæði sem eru borgaranum í hag.
Ef við spyrjum alla þá sem misstu eða munu
missa vinnuna í kjölfar útbreiðslu COVID-19
veirunnar hvort það skipti nú máli að störf
séu til er svarið nokkuð augljóst. Öll skref
í áttina að því að bæta rekstrarumhverfi
íslenskra fyrirtækja og þar með skapa störf
og tryggja afkomu landsmanna eru mikilvæg.
Sama hversu lítil þau eru.
Hins vegar þurfum við að gæta okkur að stíga
ekki skref í gagnstæða átt, fækka störfum og
íþyngja fyrirtækjum með aukinni skattbyrði.
Í því samhengi má nefna fasteignagjöld á
atvinnuhúsnæði í Reykjavíkurborg, sem eru
þau hæstu á landinu. Fasteignamat hefur
farið hækkandi og hafa nærliggjandi sveitar-
félög lækkað fasteignagjöld í samræmi við
það. Stefna borgarinnar virðist vera á allt aðra
leið en að aflétta slíkri byrði þótt það ætti að
vera í forgangi.
Að lokum er í rauninni fagnaðarefni að
aðstæðurnar sem við stöndum nú frammi
fyrir séu ekki að koma í veg fyrir að almennt
löggjafarstarf fari fram. Einn daginn mun
samfélagið fara í eðlilegt horf og hjól
atvinnu lífsins fara að snúast á ný.
Höfundur er formaður Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Er þetta forgangsmál?
Ungliðahreyfingin