Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 40
38 ÞJÓÐMÁL Vor 2020
Nýsköpun er ekki tískuorð
Þórdís Kolbrún er sem kunnugt er einnig
ráðherra nýsköpunarmála og hefur í
ráðherra tíð sinni lagt nokkra áherslu á mikil-
vægi nýsköpunar. Nýsköpunarstefna fyrir
Ísland var nýlega kynnt og skýrt er kveðið á
um áherslu á nýsköpunarmál í stjórnarsátt-
mála ríkisstjórnarinnar. En nýsköpun er að
sögn Þórdís Kolbrúnar ekki bara tískuorð á
vettvangi stjórnmála heldur lykilforsenda í
frekari framförum og verðmætasköpun.
„Samfélaginu mun vegna vel ef Sjálfstæðis-
flokkurinn nær að koma áherslumálum
sínum í framkvæmd, og frumkvöðlastarfsemi
og nýsköpun er það sem flokkurinn stendur
fyrir. Sköpunarkraftur og hugvit einstaklinga
er ein mikilvægasta uppspretta verðmæta-
sköpunar í samfélaginu enda í reynd
ótakmörkuð auðlind,“ segir Þórdís Kolbrún.
„Ég held að við getum ekki lagt of mikla
áherslu á nýsköpun, það mun skipta öllu máli
að leggja ofuráherslu á nýsköpun næstu
misseri. Við erum í dag að búa til meiri
verðmæti innan rótgróinna atvinnugreina
með öflugri nýsköpun og fjárfestingu í nýrri
tækni. Þegar maður horfir á helstu áskoranir
samfélagsins, þá er ég þeirrar skoðunar að
nýsköpun geti leyst þær flestar. Hvort sem við
horfum á breytingar á störfum, fjórðu
iðnbyltinguna, öldrun þjóða, loftslagsmál
eða fæðuöryggi, þá er nýsköpun svarið.
Það er margt að breytast um þessar mundir
og sú staða sem nú ríkir vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar mun flýta fyrir ákveðinni
þróun sem í sumum tilvikum var þegar hafin.
Kennsla mun breytast, starfshættir munu
breytast hvort sem það er hjá einkageiranum
eða hinu opinbera, heilbrigðiskerfið er að
breytast og ég hef mikla ástríðu fyrir því að
við stóraukum nýsköpun í heilbrigðis- og
velferðarkerfinu, hvort sem það er þjónusta
við eldri borgara eða í öðrum þáttum. Þannig
viðhöldum við því velferðarsamfélagi sem við
viljum halda uppi. Við verðum að horfa til
þess að í framtíðinni verða líklega hlutfalls-
lega færri á vinnumarkaði, við lifum lengur,
flóknari lyf geta orðið dýrari og ef við aukum
ekki nýsköpun í þessu kerfi getum við ekki
borið það uppi eins og við gerum núna.
Það er samfélagsleg sátt um að þessi kerfi
séu öllum aðgengileg. Mér finnst vera vilji
og stuðningur til að auka fjölbreytni og
nýsköpun innan heilbrigðiskerfisins en við
erum ekki alveg búin að ná því hvernig við
ætlum að innleiða þær lausnir.“
Þá segir Þórdís Kolbrún að stofnun Kríu, sem
er hvatasjóður sem fjárfestir í vísisjóðum,
muni einfalda fjármögnun nýsköpunar og
hún býst við því að erlendir fjárfestar horfi í
auknum mæli til Íslands.
„Stjórnmálin þurfa að taka þátt og ég lít á
það sem hlutverk mitt sem nýsköpunar-
ráðherra að auka umræðu um mikilvægi
nýsköpunar og fara í aðgerðir sem efla