Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 98
96 ÞJÓÐMÁL Vor 2020
Að lokum
Í rúman áratug hafa vinstri menn verið
duglegir að minna á að við upphaf hinnar
svokölluðu Búsáhaldabyltingar hafi frumvarp
um að leyfa sölu áfengis í verslunum verið
á dagskrá Alþingis. Látið er að því liggja að
þáverandi þingmeirihluti hafi verið svo úr
takti við raunveruleikann að þetta hafi verið
hans helsta forgangsmál.
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, rifjar nýlega
upp á vefsíðu sinni að þegar Alþingi kom
saman eftir jólaleyfi 20. janúar 2009 höfðu
nokkur mál verið sett á dagskrá þingsins. Þar
á meðal stjórnarfrumvörp um vátryggingar-
starfsemi og greiðslur til líffæragjafa, laga-
frumvörp um olíugjald og tóbaksvarnir,
fyrrnefnd frumvarp um sölu á áfengi og loks
þingsályktunartillaga um andstöðu við eld-
flaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu.
„Þeir sem á þingi sátu eða vissu hvernig
dagskrá þingsins var samin sáu strax að
ofangreind dagskrá hefði verið tekin saman
á þingtæknilegum forsendum en ekki með
hliðsjón af pólitískum veruleika enda var
öllum dagskrármálunum ýtt út af borðinu,“
rifjar Björn upp.
„Þrátt fyrir þessar augljósu staðreyndir gripu
andstæðingar ríkisstjórnarinnar og þing-
meirihlutans til herferðar að hætti upplýsinga-
falsara um að vilji meirihlutans að baki
þing forseta og ríkisstjórn hefði staðið til þess
að ræða aukið frjálsræði í sölu áfengis og
tóbaks þennan örlagaríka dag. Að upplýsinga -
falsararnir nefndu ekki andstöðu við eldflauga-
varnarkerfi í Austur-Evrópu sýnir úr hvaða átt
þeir komu, þetta var eitt af baráttumálum
NATO-andstæðinga á þessum tíma.“
Tilefnið að þessari upprifjun Björns er að nú
þegar glímt er við Covid-19 faraldurinn er
enn hafin herferð í krafti upplýsingafalsana
með umræðum um sölu á áfengi. Það kemur
til vegna frumvarps sem Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir dómsmálaráðherra hefur boðað.
Drög að frumvarpinu voru kynnt fyrir nokkru,
það var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í
byrjun árs en hefur ekki enn verið lagt fram á
Alþingi. Þá hefur starfsáætlun þingsins verið
tekin úr sambandi og eingöngu þau mál sem
snúa beint að viðbrögðum vegna Covid-19
verða sett á dagkrá. Það verður því seint sagt
að málið sé forgangsatriði, því miður.
Þrátt fyrir þessar augljósu staðreyndir hafa
andstæðingar frumvarpsins fari hátt með þá
skoðun sína að þetta sé helsta forgangsmál
ráðherrans um þessar mundir, jafnvel sérstak-
lega tilkomið vegna Covid-19 veirunnar.
Pólitískir andstæðingar ráðherrans (stjórn-
málamenn, álitsgjafar og tilteknir fjölmiðlar)
hafa ýtt undir þessa mýtu.
Áslaug Arna svaraði gagnrýnisröddum á
facebook síðu sinni í byrjun apríl og benti
á að málið hvorki nýtt né tilkomið vegna
Covid-19 veirunnar. Hún benti jafnframt á
að málið væri eitt af mörgum á hennar borði
og að ekki væru lagðar til aðrar breytingar á
áfengislöggjöfinni en þær að jafna stöðu inn-
lendra og erlendra aðila, enda væri nú þegar
hægt að panta óhindrað áfengi frá erlendum
vefverslunum (en ekki innlendum).
Vonandi setur Áslaug Arna málið þó í forgang
þegar eðlileg dagskrá hefst á ný á Alþingi,
nema samstarfslokkarnir í ríkisstjórn komi í
veg fyrir að það verði lagt fram.
Upplýsingafalsanir um áfengissölu