Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 81

Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 81
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 79 Forrester gerir andmælendum Rawls ekki síður góð skil en honum sjálfum og fylgis- mönnum hans. Lesandi fær því nasasjón af hugsun margra af þekktustu siðfræðingum og stjórnspekingum samtímans. Þar á meðal eru Ronald Dworkin, Alasdair MacIntyre, Thomas Nagel, Robert Nozick, Michael Sandel, Peter Singer, Charles Taylor og Michael Walzer. Bókin er skrifuð af skilningi á miklum fjölda heimspekilegra rita á sviði siðfræði og stjórn- málaheimspeki. Hún veitir líka víða yfirsýn og tengir frásagnir um rökræður heimspekinga við breytingar á menningu og stjórnmálum síðustu hálfa öld. Með þessu eru frjálslyndið og einstaklingshyggjan sem hafa mótað heiminn undanfarna áratugi sett í sögulegt samhengi. Um leið er mörgum hugarfóstrum sem kynntu sig eins og þau væru tímalaus sannindi lýst sem börnum sögu og siðar. Frá hægri til vinstri Meginreglurnar tvær sem Rawls rökstuddi eru í anda frjálslyndis og margt sem hann segir styðst við skrif frjálshyggjumanna frá fyrri tíð. Þegar hann hóf að móta kenningu sína fljótlega eftir seinni heimsstyrjöld var honum einkum umhugað um að verja einstaklingsfrelsi. Á bókarkápu útgáfunnar frá 1971 er þessari hlið á hugsun Rawls hampað og andstaða hans gegn nytjastefnu áréttuð þar sem segir að samkvæmt kenningu hans eigi hver maður „sína friðhelgi sem grundvallast á réttlæti og eigi má hunsa jafnvel þótt velferð samfélagsins sé í húfi. Í réttlátu samfélagi eru réttindin sem réttlætið tryggir því ekki háð pólitísku samkomulagi eða niðurstöðu útreikninga á því hvað er heildinni til hagsbóta“. Nú, næstum hálfri öld seinna, er hægt að sjá að fræði Rawls voru hluti af viðleitni sem birtist á marga vegu og snerist um að gera það pólitíska ópólitískt. Aðrar birtingar- myndir hennar voru tilraunir til að skilja efnahagslífið eins og það fylgdi leikreglum sem væru hafnar yfir valdsorðaskak og skoða rétt borgaranna sem tímalaus mannréttindi, óháð stund og stað og utan við karp og þref (Atli Harðarson, 2015). Rawls mótaði hugmyndir sínar að miklu leyti nær tveimur áratugum áður en Kenning um réttlæti var gefin út og þær voru að nokkru leyti svar við alræðisstefnu og kúgun – kommúnisma og fasisma – sem eyðilögðu samfélög manna víða um heiminn á fyrri hluta síðustu aldar. En þegar bókin kom út var veröldin orðin öðruvísi en hún var þegar hugsunin í henni mótaðist. Áhyggjur manna voru aðrar því á áttunda áratugnum þótti mörgum að jafnaðarstefnan, sem fékk byr í seglin eftir stríð, ætti sök á verðbólgu, atvinnu leysi og minnkandi hagvexti. Hún hafði lagt meiri áherslu á hag heildarinnar en réttindi einstaklinganna og hún hafði líka blandast hagfræðilegum útgáfum af nytja stefnu. Þeir sem höfðu hana að blóraböggli boðuðu gjarna meiri frjálshyggju með áherslu á réttindi einstaklinganna. Á sama tíma var æskan víða í uppreisnarhug sem kenndur var við árið 1968. Mörgum fannst kominn tími til að breyta. Fyrir þá sem hugðu að aukið einstaklingsfrelsi svaraði kalli tímans, en vildu jafnframt halda í áherslu vinstriflokka á jöfnuð, kom bók Rawls eins og himnasending. Hún fylgdi straumnum í því að rökstyðja að takmarka skyldi vald ríkisins yfir borgurunum en fól jafnframt í sér fyrirheit um að frelsið og einstaklings- réttindin yrðu þeim fátæku í hag. Úr þessu varð til ný tegund vinstristefnu sem gjarna er kölluð frjálslynd jafnaðarstefna. Það er samt álitamál hvar réttast er að staðsetja Rawls sjálfan á litrófi stjórnmálanna. Meðan hann vann að bók sinni átti hann um margt samleið með frjálshyggjumönnum. Eftir því sem Forrester segir þáði hann boð Miltons Friedman um að ganga í Mont Pèlerin- samtökin árið 1968. Aðild hans að þeim lauk þó 1971, árið sem Kenning um réttlæti kom út. Hún rifjar líka upp að Friedrich von Hayek lauk lofsorði á skrif Rawls og kvaðst að mestu sammála þeim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.