Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 89

Þjóðmál - 01.03.2020, Blaðsíða 89
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 87 vera í samræmi við hlutfallslegan fjölda hvers hóps í samfélaginu í heild. Annað væri prima facie sönnun um ólöglega mismunun. Sú orðræða sem af þessu hlaust átti eftir að lama háskólana, sem urðu fórnarlömb eins konar varanlegra nornaveiða sem minntu óþægilega á kínversku menningarbyltinguna. Í stað þess að líta á ytri einkenni sem ómálefnalegan grundvöll að ákvarðanatöku og byggja útdeilingu gæða á verðleikum óháð slíkum einkennum fóru þau að skipta öllu máli. Hópar sem fóru halloka út úr þessu kerfi fóru að gæta hagsmuna sinna á grundvelli þeirra ytri einkenna sem kerfið úthlutaði þeim. Þannig hófu gyðingar og Bandaríkjamenn af asískum uppruna að mótmæla þeirri neikvæðu mismunun sem þeir urðu fyrir við inngöngu í háskóla vegna nauðsynjar þess að tryggja „fjölbreytileika“. Baráttan gegn meintu ójafnrétti, fordómum og mismunun varð jafnframt að ábatasömum iðnaði, sem gat af sér öfluga hagsmunagæslu, eins og oftast fylgir slíkum iðnaði, enda um óþrjótandi auðlind að ræða. Jafnréttislögin og önnur tengd lög voru líka dýru verði keypt enda kölluðu þau á stóraukin fjárútlát hins opinbera, sem ásamt vaxandi kostnaði við stríðsrekstur í Víetnam ollu viðvarandi fjárlagahalla og verðbólgu. Ótti fyrirtækja við lögsóknir á grundvelli hinnar nýju löggjafar varð svo megindrifkrafturinn á bak við vöxt þess sem kallað hefur verið „dyggðaflöggun“, sem spratt upp úr viðleitni fyrirtækja til að bólusetja sig gegn lögsóknum byggðum á ásökunum um fordóma og mismunun með því að reyna að sýna með virkum og fyrirbyggjandi hætti fram á einlæga trú sína á hið nýja jafnréttisguðspjall eins og það var túlkað af róttæklingum í háskóla- samfélaginu. Lögin gerðu líka að mörgu leyti líka illt verra í samskiptum hvíta meirihlutans og svarta minnihlutans. Enda skiptust leiðtogar blökkumanna upp frá því milli þeirra sem vildu taka þátt í samfélaginu á sama grundvelli og aðrir og hinna sem kröfðust stöðugt fleiri sérúrræða og vildu kenna hvítum um allt sem miður fór. Þegar á leið áttunda og níunda áratuginn og róttæklingar höfðu komið sér fyrir í stjórn- málum og menningu hins vestræna heims fór arfleifð sjöunda áratugarins að kristallast í alveg nýju samfélagsmódeli, sem kalla má „einstaklingssamfélagið“. Það byggðist á róttækri afstæðishyggju, þar sem sjálfsforræði einstaklingsins var heilagt og hvers kyns „menningarleg skilyrðing“ bönnuð. Þannig væri þjóðin bara „ímyndað samfélag“, eins og Benedict Anderson kaus að lýsa því í sam- nefndri bók sinni, sem kom út árið 1983. Menning þyrfti því að fara sömu leið og trúarbrögð; ríkið hefði enga sérstaka menningu að verja og setja þyrfti á fót eins konar hlutlausan stofnanaramma, þar sem engri menningu yrði gert hærra undir höfði en öðrum. Miðlun hvers kyns viðmiða, þar á meðal í tengslum við uppeldi barna, varð óæskilegt brot á sjálfsforræði einstaklingsins. „Aðskilnaður ríkis og þjóðar“ væri rökrétt framhald í framþróun mannkynsins, nauðsynlegt skref til þess að „alls konar“ gæti dafnað í samræmi við leit einstaklingsins að „algjörri frelsun“ og „ósvikinni sjálfstjáningu“. Mannréttindi – réttarríkið gegn hinu pólitíska valdi Í öllu þessu fólst veruleg breyting frá samfélags- módeli þjóðríkisins. Því sem afrakstur byltingar skilgreindi nýja samfélagið sig auðvitað í biturri andstöðu við það sem á undan kom: gamla samfélagið var lóðrétt, hin nýja lárétt, byggt á samskiptum og markaðnum; gamla samfélagið var hálfopið – takmarkað við þjóðina – en nýja samfélagið opið öllum; gamla samfélagið hafði eigin sögu og menningu að miðla og verja en nýja samfélagið ekki – hugmyndafræði þess var róttæk afstæðishyggja þar sem ekkert var réttara, betra eða verra en hvað annað. Mikilvægasta gildið var fjölbreytileikinn; umburðarlyndi og varanleg barátta gegn hvers kyns „fordómum“ og „mismunun“ helsta viðfangsefnið. Eina viðurkennda trúarsetningin: mannréttindin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.