Þjóðmál - 01.03.2020, Side 23

Þjóðmál - 01.03.2020, Side 23
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 21 11. Gerið ykkur grein fyrir að umboðsvandinn er alltumlykjandi og grípið til aðgerða til að lágmarka skaðann sem af honum hlýst. Við hönnun á opinberum aðgerðum til stuðnings nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi þurfum við að vera mjög meðvituð um að þar blandast saman háleitar hugsjónir og hefðbundnir hagsmunir. Um leið og einhvers konar kerfi er sett á laggirnar þar sem opinbert fjármagn kemur við sögu þarf að gæta sérstaklega vel að því að viðhalda skilningi á upprunalegum tilgangi (hugsjóninni) en gæta þess að kerfið fari ekki að snúast um sig sjálft (hagsmunina). Það er til að mynda umhugsunarefni hvort ekki sé rétt að huga með reglulegu millibili að uppstokkun á stofnana umgjörð í nýsköpunarmálum til þess að reyna að koma í veg fyrir að mála- flokkurinn verði stofnanavæðingu að bráð. Allra fyrsta leiðarljós nýsköpunarstefnunnar: „Hugvit einstaklinga er mikilvægasta upp- spretta nýsköpunar“ er í raun árétting um þá staðreynd að nýsköpun á ætíð uppruna sinn hjá einstaklingum, en ekki stofnunum eða fyrirtækjum. Vissulega geta einstaklingar innan ýmiss konar skipulagsheilda verið uppsprettur nýsköpunar en reynslan sýnir að frumkvöðlakrafturinn er að jafnaði líklegasti farvegurinn fyrir nýsköpun, og mikilvægt er að hanna umgjörð nýsköpunar þannig að þeim krafti sé ekki haldið í skefjum til þess að viðhalda óbreyttu ástandi eða hagsmunum stofnana og rótgróinnar hugsunar. Leiðarljós númer átta og níu – þar sem lögð er áhersla annars vegar á að fjármagn rati til frumkvöðla og rannsókna, og hins vegar að útgjöld verði ekki mælikvarði árangurs – eru einmitt sett fram til þess að hamla gegn þeirri tilhneigingu að varðstaða um sérhagsmuni skyggi smám saman á upprunaleg markmið með þeim stofnunum og áætlunum sem stjórnvöld setja á fót. 12. Gerið menntun að lykilþætti. Nýsköpunarstefnan tilgreinir mannauð sem einn af hornsteinum nýsköpunar. Þar skiptir menntun í samfélaginu, bæði innan skóla- kerfisins og utan þess, mjög miklu máli. Hér á Íslandi er lögð mikil áhersla á tengsl nýsköpunar umhverfisins við menntakerfið, einkum í háskólunum. Til þess að vera samkeppnishæf á alþjóðlega vísu þurfa íslensk nýsköpunarfyrirtæki að byggjast á framúrskarandi mannauði, þar sem fer saman bókvit, hugvit, verkvit og viðskiptavit. Sköpunar gleði og hugrekki til framkvæmda þurfa að vera eiginleikar sem raunveruleg rækt er lögð við í skólakerfinu, þótt vitaskuld sé mikilvægast af öllu að tryggja að nemendur fái tækifæri til þess að öðlast og þroska þá grundvallarfærni sem þarf til þess að fóta sig í heimi alþjóðlegrar samkeppni. Þar skiptir kunnátta í raungreinum, verklegum greinum og tungumálum líklega mestu máli. Það er mikilvægt að stjórnvöld fari ekki of hratt í þeim efnum að dæla fjármagni inn í nýsköpunarumhverfið því þá getur ekki átt sér stað sú nauðsynlega grisjun sem þarf til þess að markaðurinn leiði fram þau fyrirtæki og hugmyndir sem líklegastar eru til að ná árangri.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.