Þjóðmál - 01.03.2020, Page 33

Þjóðmál - 01.03.2020, Page 33
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 31 Töluverður munur frá fyrri tíð Nú þegar skattþrepin eru þó aftur orðin þrjú er hægt að bera saman muninn á því hvernig þrepin snerta launahópa með ólíkum hætti. Sá sem hefur í dag 500 þús. kr. í mánaðarlaun greiðir nú rétt rúmlega sex þúsund krónum minna á mánuði í tekjuskatt en hann gerði í fyrra, eða um 72 þús. kr. á ári. Háskattastefna fyrrnefndrar vinstristjórnar náði hámarki árið 2012 þegar tekjuskattur í 1. þrepi var 37,34% en skattur í 2. þrepi 40,24%. Sá sem hafði 500 þús. kr. í tekjur á mánuði árið 2012 greiddi þá meira í neðra þrep hátekjuskatts en hann gerði í fyrsta skattþrepi. Alls greiddi hann um 136 þús. kr. í tekjuskatt og útsvar að frádregnum persónuafslætti. Þá var skattprósentan hærri og viðmiðin á milli þrepa mun lægri en þau eru í dag. Ein leið til að bera tekjuskattskerfið frá 2012 saman við kerfið í dag er að uppreikna 500 þús. kr. laun á verðlagi dagsins í dag, sem gerir þá um 612 þús. kr. Ef við uppreiknum um leið viðmiðin í fyrsta skattþrepi eins og það var í tíð vinstristjórnarinnar ásamt persónu afslætti3 myndi viðkomandi greiða í dag um 166 þús. kr. í tekjuskatt og útsvar að frádregnum persónuafslætti.4 Miðað við tekjuskattskerfið eins og það er byggt upp nú greiðir viðkomandi um 150 þús. kr., eða tæpum 16 þús. kr. minna. Það gera tæplega 190 þús. kr. á ári. Í þessu liggur munurinn á skattastefnu Sjálfstæðisflokksins annars vegar og vinstriflokkanna hins vegar. Þetta einfalda dæmi segir að sjálfsögðu ekki alla söguna. Hærra framlag í séreignarsparnað hefur áhrif á skattgreiðslu ásamt öðrum þáttum. Tilgangurinn með þessu einfalda dæmi er eingöngu sá að sýna enn og aftur hvernig skattahækkanir vinstrimanna eru líklegar til að falla frekar á millitekjuhópa en aðra. Það má gera ráð fyrir að þrepaskipt skattkerfi sé því miður búið að festa sig í sessi hér á landi. En fyrst svo er skiptir töluverðu máli hvernig skattþrepin eru afmörkuð og flokkuð eftir tekjuhópum. Það er bót í máli að núverandi skattkerfi hlífi þeim sem teljast til millitekjuhópa. Höfundur er ritstjóri Þjóðmála. 2Miðað við útreikninga þar sem einstaklingur greiðir 4% í lífeyrissjóð og 2% í séreignarsparnað. 3Persónuafsláttur fylgir ekki verðlagi, hér er hann aðeins uppreiknaður frá árinu 2012 eins og aðrar tölur í dæminu. 4Miðað er við 2% greiðslu í séreignarsparnað. Miðað við tekjuskattskerfið eins og það er byggt upp nú greiðir viðkomandi um 150 þús. kr., eða tæpum 16 þús. kr. minna. Það gera tæplega 190 þús. kr. á ári. Í þessu liggur munurinn á skattastefnu Sjálfstæðisflokksins annars vegar og vinstriflokkanna hins vegar.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.