Þjóðmál - 01.03.2020, Síða 38

Þjóðmál - 01.03.2020, Síða 38
36 ÞJÓÐMÁL Vor 2020 Sameina má og leggja niður stofnanir Þú segir að hægrimenn hafi verið gagnrýndir fyrir að taka hagsmuni atvinnulífsins fram yfir hagsmuni velferðarkerfisins. En sumir myndu halda því fram að Sjálfstæðisflokkurinn eigi það til að taka hagsmuni hins opinbera fram yfir hagsmuni atvinnulífsins. Hvernig svarar þú því? „Ég hef alveg fundið fyrir þeim málflutningi, sem snýr helst að reglugerðarfargani og vaxandi eftirlitsiðnaði. Ég skil hvaðan sá mál- flutningur kemur og ég tek undir hann að miklu leyti,“ segir Þórdís Kolbrún. „Ég tel þó að pirringurinn út í ríkið væri minni ef við værum komin lengra í innleiðingu á stafrænum lausnum, sem við erum að vinna í af fullum krafti og Bjarni Benediktsson hefur gert gangskör í, og værum með skilvirkari ferla innan stofnana, þannig að þær væru að svara erindum innan tímamarka. Ríkis stofnanir verða að sinna þjónustuhlutverki sínu vel, þær eru til fyrir borgarana en ekki öfugt.“ Þórdís Kolbrún segir það rétt að ríkið, og þar með ríkisvaldið, hafi stækkað, ekki bara á liðnum árum heldur áratugum. „Við þurfum þó að hafa í huga að við erum að búa til meiri verðmæti en áður. Þá tel ég að hægt sé að gera eðlilega kröfu um að samfélagið í heild sinni fái einhverja hlutdeild í því. Þannig getum við byggt upp það öfluga velferðarkerfi sem ég ræddi áðan,“ segir Þórdís Kolbrún. „En ég heyri líka, bæði frá hægrimönnum og öðrum, að ríkið eigi að gera hitt og þetta. Það er aftur á móti ekki hægt í sömu setningu að biðja um lægri skatta og minna ríki en vera um leið á móti hlutum á borð við tekju- tengingu lífeyrisgreiðslna til betur settra eldri borgara, breytt fyrirkomulag gjaldtöku í vegaframkvæmdum og þannig mætti áfram telja. Við erum með tekjutengingar í barna- bótum og sambærilegum greiðslum af því að við viljum beina fjármagninu þangað þar sem þess er mest þörf. Það sama á við í almanna- tryggingakerfinu, sem hefur vaxið mikið.“ En snýr þessi gagnrýni ekki frekar að fjölgun starfa hjá ríkinu, stærra hlutverki eftirlits- stofnana og svo framvegis? „Jú, og við finnum alveg fyrir því. Þess vegna höfum við Kristján Þór Júlíusson farið í tiltekt í atvinnuvegaráðuneytinu til að bæta úr þessu, bæði með úttekt á lögum og reglugerðum sem eru úrelt en einnig í stærri verkefnum sem felast í því að endurskilgreina þær kröfur sem gerðar eru til atvinnulífsins,“ segir Þórdís Kolbrún. Sjálf kynnti Þórdís Kolbrún nýlega áform um að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands. „Hluta af þeim verkefnum sem hún sinnir er markaðurinn að sinna, þó að hann hafi ekki gert það fyrir 15 árum þegar stofnunin var sett á laggirnar. Annar hluti af þessum verkefnum verður áfram til á skynsamlegri stað, nær háskólasamfélaginu og frum- kvöðlum,“ segir Þórdís Kolbrún. „Við eigum að vera óhrædd við að meta verkefni upp á nýtt. Það koma sífellt ný verkefni inn á okkar borð, það verða til nýjar kröfur og ný löggjöf og þannig mætti áfram telja. Við erum hins vegar of treg til að horfa á grunninn eins og hann er og spyrja: „Á þetta að vera svona?“ Við erum þess í stað of upptekin við að byggja ofan á það sem fyrir er. Það er mín pólitíska sýn að við eigum að nýta betur þá krafta sem verða til í svo- kölluðum PPP-verkefnum, með samstarfi opinberra aðila og einkaaðila. Með fleiri sam- starfsverkefnum hins opinbera og atvinnu- lífsins náum við fram auknum kröftum einkageirans til að keyra mál áfram og ég held að allir njóti góðs af því, hvort sem það er í samgönguverkefnum, í nýsköpun í atvinnulífi, innan háskólasamfélagsins eða annars staðar.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.