Þjóðmál - 01.03.2020, Page 45
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 43
Þannig að þér sem ungum kvenkyns ráðherra
stendur ekki ógn af öðrum konum?
„Alls ekki. Ef ég get með einhverjum hætti
rutt veginn þannig að það sé auðveldara fyrir
konur að koma fram og gera hlutina á sínum
forsendum og eins og þeim finnst best en
ekki á forsendum þess sem áður var, þá tel ég
að bæði ég og flokkurinn höfum náð árangri,“
segir Þórdís Kolbrún.
„Mér finnst reyndar áhugavert að tala um
jafnréttismál því ég fór ekki út í stjórnmál til
að takast sérstaklega á við jafnréttismál. Ég
hafði ekki sterkar skoðanir á þeim og gerði
aldrei ráð fyrir því að vera einhvers konar
merki um jafnréttismál innan Sjálfstæðis-
flokksins eða í stjórnmálum almennt. Þegar
ég var skipuð ráðherra var ég yngsta konan
sem hafði gegnt ráðherraembætti en svo
kom Áslaug Arna fljótlega á eftir. Eg finn
alveg fyrir því að það skiptir máli, ekki bara
fyrir konur heldur líka karla.“
Að öllu óbreyttu áttu að minnsta kosti 35 ár
eftir af starfsferli þínum. Verður hann allur á
vettvangi stjórnmála?
„Þegar ég varð þingmaður hugsaði ég að þó
að ég sæti í þrjú kjörtímabil yrði ég aðeins rétt
rúmlega fertug að því loknu og hefði því tíma
til að ákveða hvað ég myndi vilja verða þegar
ég yrði stór,“ segir Þórdís Kolbrún og hlær.
„Mér finnst ég vera í skemmtilegasta starfi
sem ég get hugsað mér. Ég vakna á morgnana
og er spennt fyrir þeim verkefnum sem bíða.
Mér finnst ég hafa erindi, rödd og burði til að
bæta íslenskt samfélag, breikka Sjálfstæðis-
flokkinn og ná til fleira fólks. Mér finnst ég
eiga mikið inni. Á meðan ég hef ánægju af
þessu starfi og stuðning til að vera á þingi og
í forystu flokksins, þá vil ég gera það. Ég vil
breyta heiminum. Stjórnmálin eru ein leið til
þess en svo er hægt að gera það með öðrum
hætti. Tíminn verður að leiða í ljós hvað verður.“
gislifreyr@thjodmal.is