Þjóðmál - 01.03.2020, Side 51

Þjóðmál - 01.03.2020, Side 51
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 49 Önnur atriði sem stýrt er leysa ekki slík vandamál jafn augljóslega. Tökum til dæmis glugga, hávaðamörk, stærð herbergja, stærð baðherbergis og lofthæð. Þetta eru allt atriði sem neytandi getur metið þegar hann skoðar íbúð eða hús. Ef ég vil stóra glugga sem hleypa nægri dagsbirtu inn í svefnherbergið mitt get ég auðveldlega metið hvort tiltekin íbúð fullnægir þessari þörf minni eða ekki. Engin ástæða er til að skipuleggjendur séu að skipta sér af svona hlutum. Þegar þeir gera það verður húsnæðið dýrara. Spurningin er hvort nauðsynlegt sé að gera kröfur um tiltekna lofthæð, gluggastærð eða hávaðamörk, kröfur sem valda því að sumar fjölskyldur eiga enn erfiðara en ella með að verða sér úti um húsnæði? 2. Landnýtingarstefna Engin tilviljun er að borgir líta út eins og þær gera, með háum byggingum í miðborgum og lágreistum húsum í úthverfum. Lóðaverð skýrir þetta. Þar sem lóðaverð er hátt leggja neytendur meira upp úr staðsetningu en stærð. Og byggingaverktakar líta meira til fjármagnskostnaðar en lóðakostnaðar, nota minni lóðir á stöðum þar sem þær eru dýrar og byggja hærri hús á þeim. Ódýrara húsnæði getur fengist með því að leyfa hærri byggingar þar sem lóðir eru ódýrari, en dæmigert er að skipulagsyfirvöld hafi ákveðið að einbýlishús skuli byggð á slíkum stöðum. Það þýðir að háhýsi eru reist á dýrari lóðum, sem leiðir til dýrara húsnæðis. Svipuð og að sumu leyti tengd stýring á land- notkun er eftirspurn eftir minnstu lóðunum. Skipulagsyfirvöld kunna að ákveða að lóð undir hús eigi að vera að minnsta kosti 1.500 fermetrar. Ef þú vilt, eins og ég nefndi að sumar sveitarstjórnir gera, tryggja að ekkert fátækt fólk geti flutt í húsin er alltaf góð hugmynd að ákveða að þú þurfir mikið landrými til að byggja hús. 3. Stýring á leiguverði Ein af vinsælustu stefnum sem stjórnmála- menn grípa til í húsnæðisskorti er stýring á leiguverði. Bæði Jeremy Corbyn og Bernie Sanders hafa nýlega kallað eftir allsherjar leiguverðsstýringu á Bretlandi og í Banda- ríkjunum. En hvernig getur þvingað lágt leiguverð komið sér illa fyrir fátækt fólk? Til að skilja hvernig þvingað lágt leiguverð getur komið sér illa fyrir fátækt fólk verðum við að skilja nokkur atriði. Þar er fyrst til að taka að þegar leiguverði (eða verðlagningu á öðrum hlutum) er haldið niðri hefur það áhrif á eftirspurn. Ef ég þarf ekki að greiða fullt verð fyrir neyslu mína hef ég tilhneigingu til að auka hana, það er að segja neysla mín verður meiri. Hið sama gildir um húsnæði. Ef ég þyrfti ekki lengur að greiða fullt verð fyrir húsnæði gæti ég kosið að búa í stærri íbúð en ég myndi ella gera. Í öðru lagi: Þegar leiguverði er stýrt er ekki lengur hægt að beita því við úthlutun hús- næðis. Þá þarf aðra leið til að velja fjölskyldur sem vilja fá íbúð á leigu. Ein algeng aðferð er að beita biðtíma. Ættum við þá að gera ráð fyrir því að lágtekjufjölskyldur hafi meiri möguleika á að bíða? Nei, staðreyndin er sú að á leigumarkaði getum við búist við hinu gagnstæða. Tekjuhærri fjölskyldur geta leyst húsnæðisvanda sinn á meðan þær bíða eftir góðum íbúðum með stýrðu leiguverði. Þess vegna verður ólíklegra að íbúðir með stýrðu leiguverði hafni hjá lágtekjufjölskyldum. Að láta þetta regluverk lönd og leið og velja að koma upp nýjum reglum sem við vonum að leiði til sömu niðurstöðu gæti stundum valdið millistéttarfólki erfiðleikum. Það myndi hins vegar leysa einhvern húsnæðisvanda fólks með lágar tekjur. Og ef það er þess konar samfélag sem við viljum verðum við að sætta okkur við að það kostar sitt. Höfundur er lektor í fasteignafræðum við Háskólann í Lundi.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.