Þjóðmál - 01.03.2020, Page 61

Þjóðmál - 01.03.2020, Page 61
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 59 Það er mat þess sem þetta skrifar að skákhreyfingin geti jafnvel orðið sterkari eftir á en fyrir hina alþjóðlegu veirukreppu. Skák- sambandið hefur tekið þá stefnu að auðsýna mikinn sveigjanleika og skákmenn læra eitthvað nýtt – sem þeir hafa kannski ekki lagt rækt við. Svo er líklegt að ungmenni, sem hefðu kannski ekki annars prófað skák, uppgötvi hve skák er skemmtileg og haldi áfram að tefla! Áskorendamótið í Katrínarborg Á meðan teknar voru ákvarðanir um að fella keppni niður í skák, fótbolta, handbolta, körfubolta og söng ákvað alþjóðlega skák- sambandið, FIDE, að halda sínu striki og halda áskorendamótið í skák í Katrínarborg í Rússlandi. Mótið var sett 15. mars og átti að ljúka 3. apríl. Ákaflega umdeild ákvörðun sem margir gagnrýndu. Á áskorendamótinu tefla átta skákmenn tvöfalda umferð, alls 14 skákir, um réttinn til að mæta Magnúsi Carlsen í heimsmeistara- einvígi í skák. Áætlað var að heimsmeistara- einvígið hæfist 21. desember nk. í Dubai. Sú tímasetning er að sjálfsögðu nú í algjörri óvissu. Mörgum þótti að FIDE væri þarna að leika sér að eldinum. Til dæmis það eitt að Ding Liren, þriðji sterkasti skákmaður heims, væri staddur í Kína þótti ekki spennandi tilhugsun. Honum gekk illa að komast til Rússlands, þar sem vegabréfið hans var geymt hjá kínverska skáksambandinu og allt var lokað á meðan kínverski nýársfögnuðurinn gekk yfir. Vegabréfsvandann tókst þó að leysa og Ding komst til Rússlands í tæka tíð. Þá var honum útvegað rússneskt herrasetur til afnota, þar sem hann var í einangrun í tvær vikur ásamt aðstoðarmönnum sínum, og losnaði aðeins nokkrum dögum fyrir mót. Einn áskorendanna neitaði þátttöku Aserinn Teimor Radjabov, einn áskorendanna átta, var alls ekki sáttur. Hann sendi erindi til FIDE og óskaði eftir því mótinu yrði frestað vegna kórónuveirunnar. Benti hann meðal annars á að a.m.k. tveir keppenda kæmu frá óöruggum stöðum, og átti þar við fyrr- nefndan Ding Liren og landa hans, Wang Hao, sem hafði verið í Japan. Radjabov taldi öryggi keppenda því ekki tryggt. Jafnframt benti hann á að aðstæður gætu orðið mjög erfiðar ef einhver keppandi yrði veikur, þótt það væri bara kvef. FIDE gaf Radjabov ákveðinn tímafrest til að ákveða sig. Þegar Aserinn gaf sig ekki kom yfirlýsing frá FIDE um að hann hefði ekki verið með vegna persónulega ástæðna. Radjabov var eðli málsins samkvæmt ekki sáttur og gerði athugasemdir við orðalagið og útskýrði af hverju hann tók ekki þátt. Varamaður Radjabov, Frakkinn Maxime Vachier-Lagrave, var kallaður til og átti eftir að setja svip sinn á mótið. Nepo gefst upp á móti Frakkanum Vachier-Lagrave (Mynd: Lennart Ootes/FIDE)

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.