Þjóðmál - 01.03.2020, Page 63

Þjóðmál - 01.03.2020, Page 63
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 61 séu að loka landinu, meðal annars fyrir flugumferð. Keppendur séu hvattir til að taka saman og undirbúa sig fyrir brottför. Giri bregst fljótt við, kaupir flug sem fór 2½ klukkustund síðar, pakkar saman og tekur leigubíl út á flugvöll þar sem hann tók áætlunarflug til Amsterdam. FIDE útvegaði leiguflug og svo fór að aðrir keppendur og starfsmenn komust allir naumlega úr landi áður en því var lokað, reyndar eftir alls konar tafir og óþægindi. FIDE sýndi mikinn dómgreindarskort með mótshaldinu. Forystumenn þess sögðu að ástandið hefði alls ekki verið svo slæmt við upphaf mótsins en flestum var samt ljóst að stefnt gæti í óefni. Keppendur, sem höfðu barist um sætin átta, létu sig hafa að mæta til leiks missáttir að einum undanskildum sem mætti ekki. Hvað gerist næst? FIDE gaf það upp fyrir mót að ef til stöðvunar kæmi myndi staðan halda sér og mótinu yrði fram haldið við fyrsta tækifæri. Samþykktu keppendur það á tæknifundi fyrir mót. Radjabov er alls ekki sáttur við þá niðurstöðu og vill að mótið byrji frá grunni enda hafi kvörtun hans fyrir mót verið réttmæt. Margir hafa tekið undir þá kröfu hans og meðal annars hefur verið birt opið bréf frá aserskum landsliðsmönnum. Fjórtándi heimsmeistarinn, Vladimír Kramnik, gagnrýndi það mjög að mótið hefði farið fram. Aðrir telja það fráleitt og þar er fremstur í flokki varamaðurinn og forystusauðurinn, Maxime Vachier-Lagrave. Magnús Carlsen er sömu skoðunar og gagnrýnir Radjabov fyrir að hafa ekki tekið þátt. Ákvörðun hans lýsi ekki miklum vilja til þess að verða heims- meistari. Mörgum finnst heimsmeistarinn þarna vera allt of harðorður. Sjálfum finnst mér það líklegast að mótinu verði fram haldið. Það liggur í mannlegu eðli að margur á afar erfitt með að viðurkenna mistök, eins og lægi í raun fyrir ef FIDE hæfi mótið upp á nýtt. Þess í stað er líklegt að Radjabov fái einhverjar skaðabætur. Ekki er ólíklegt að hann fái keppnis rétt í næsta áskorendamóti sem á að fara fram árið 2022 – ef það mót færist þá ekki til. Líklega hefur staðan á hinu stóra alþjóðlega skákborði aldrei verið flóknari en einmitt nú. Höfundur er forseti Skáksambands Íslands. Flóttinn hafinn - Anish Giri á leiðinni út á flugvöll. (Mynd: Lennart Ootes/FIDE)

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.