Þjóðmál - 01.03.2020, Side 68

Þjóðmál - 01.03.2020, Side 68
66 ÞJÓÐMÁL Vor 2020 Siglufjörður var fámennt og afskipt þorp í upphafi. Og það er einmitt kjarni málsins. Byggðin var afskekkt, sem hvort í senn gerir söguna áhugaverða og spennandi, enda mikið um viðburðaríkar og dramatískar sögur af svæðinu – ekki allar með farsælan endi. Það var síðan í upphafi 20. aldar sem Norð- menn komu með bæði þekkingu og efnivið til að gera bæinn að höfuðstað síldarveiða og í kjölfarið hófst fyrsta stóriðjan á Íslandi eins og Egill kemst að orði. Farið er vel yfir upp- byggingu Norðmanna á síldarverksmiðjum í bænum – og reyndar hinum megin í firðinum undir Staðarhólsfjalli. Sú verksmiðja sem þar var reist fór síðar undir snjóflóð ásamt nærliggjandi bæjum. Síðar tóku Íslendingar síldveiðar og -vinnslu í sínar eigin hendur. Þessu fylgdi að sjálfsögðu mikil aðsókn aðkomufólks og í kjölfarið fór Siglufjörður að fá á sig stimpil sem hálfgert syndabæli, bær sem lýst var sem skítugum og illa þefjandi. Skemmtanalífið í bænum var töluvert eins og gefur að skilja, margar knæpur og skemmti- staðir sem seldu áfengi, þrátt fyrir að um tíma hafi ríkt áfengisbann hér á landi. Um leið var því haldið fram Siglufjörður væri að öllum líkindum stærsti hjónabandsmarkaður Íslands, bærinn fullur af ungu fólki þar sem stelpur að vestan og strákar að austan gátu ruglað saman reytum. Öllu þessu eru gerð góð skil í þáttunum. Þá kemur einnig fram að það ríkja ákveðnar mýtur um ljóma síldarævintýranna. Vissulega sóttust konur eftir því að vinna í síld og unnu sína erfiðisvinnu með bros á vör, eins og Anita Elefsen safnstjóri rifjar upp í þáttunum. En vinnan var erfið og aðbúnaður lélegur, jafnvel þótt miðað sé við þann tíma og það sem þá þekktist. Þarna átti sér stað hörð verkalýðsbarátta og baráttan við kapítalið, síldarspekúlanta og útgerðarmenn, tók á sig ýmsar myndir. Deilt var um það hvort arðurinn hefði orðið eftir á Siglufirði eða ekki, en þættirnir svara sjálfir þeirri spurningu. Arðurinn varð eftir í öflugri uppbyggingu bæjarins og er að hluta til enn. Þá er einnig fjallað með áhugaverðum hætti um marga þá einstaklinga sem settu svip sinn á bæinn, svo sem séra Bjarna Þorsteinsson tónskáld (og stjórnmálamanninum sem var allt í öllu á helsta uppgangstíma bæjarins við upphaf 20. aldar og á heiðurinn að skipulagi Siglu fjarðar), Egill Helgason er góður sögumaður. Hann kann að draga fram allt í senn áhugaverða, skondna og mikilvæga þætti í bland við alvarleikann sem fylgir lífsbaráttunni á svo afskekktum stað sem Siglufjörður er. (Skjáskot af vef RÚV)

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.