Þjóðmál - 01.03.2020, Side 85

Þjóðmál - 01.03.2020, Side 85
ÞJÓÐMÁL Vor 2020 83 Heimsstyrjaldirnar, rússneska byltingin og valdaskeið þjóðernissósíalismans í Þýskalandi, ásamt iðnvæddum stríðsrekstri, ollu eyðileggingu á áður óþekktum mælikvarða og voru uppspretta hörmunga sem eiga sér fá eða engin fordæmi í mannkynssögunni. Meginhugmynd greinar þessarar er hins vegar sú að þessi öld öfganna sé enn ekki liðin. Í stað „stuttrar“ tuttugustu aldar, sem tekið hafi enda þegar hamarinn og sigðin voru dregin af húni í hinsta sinn, sé hinn vestræni heimur þvert á móti enn í viðjum „langrar“ tuttugustu aldar, sem enn sér ekki fyrir endann á. Ástæðan er sú að viðleitni eftirstríðsáranna til að endurreisa frjálslynt samfélag byggt á þjóðríkinu og almennri velferð strandaði í róttækum tilraunum til að umbylta þeirri samfélagsgerð. Ein þessara tilrauna var Evrópusamruninn, sem miðaði að því að gera þjóðríkið óþarft og virðist nú að miklu leyti hafa gengið sitt skeið á enda. Önnur var stúdentabyltingin, sem markaði hins vegar vendipunkt í sögu eftirstríðsáranna og varðaði leiðina inn í nýja tegund samfélags – póstmóderníska einstaklingssamfélagið og rökrétta afleiðu þess, fjölmenningar- samfélagið. Þessi nýja samfélagsgerð einkennist umfram allt af róttækri túlkun á sjálfsforræði einstaklingsins, leitinni að full- komnu jafnrétti og krossferð gegn meintum fordómum og mismunun. Samfélagsbreytingarnar hafa valdið fordæma lausu umróti í vestrænu samfélagi, því nýja samfélagsmódelið er rík uppspretta þversagna, sem munu líklega á endanum bera það ofurliði. Aðdragandi „löngu“ tuttugustu aldarinnar og gullöld þjóðríkisins Löngu áður en hið afdrifaríka ár 1914 rann upp var það orðið sannfæring margra að Vesturlönd væru í djúpri tilvistarkreppu. Upplýsingin hafði opnað leið Evrópu að þekkingu og þróun tækni og vísinda, sem olli stöðugum hagvexti og gerði Evrópuríkjunum kleift að tryggja þegnum sínum fordæmalausa velferð. En hún hafði líka grafið undan ákveðnum grunngildum evrópskrar menningar, ekki síst kristinni trú, sem verið hafði siðferðislegur grundvöllur evrópsks samfélags. Þessum nýja veruleika hafði Nietzsche lýst á dramatískan hátt sem „dauða Guðs“. Að sinni gat þó ekkert skekið trú Evrópubúa á sífellda framþróun. Sameining Þýskalands á síðari hluta nítjándu aldar raskaði hins vegar valdahlutföllum álfunnar þó að utanríkisstefnu Bismarcks tækist að halda friðinn. Eftir brotthvarf hans úr embætti leiddi aukin spenna í samskiptum Evrópu- ríkjanna og nýtt kerfi hernaðarbandalaga hins vegar til stríðsátaka. Ensk forsíða bókarinnar Age of Extremes, sem kom út í íslenskri þýðingu undir heitinu Öld öfganna: Saga stuttu tuttugustu aldarinnar, 1914-1991.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.