Þjóðmál - 01.03.2020, Qupperneq 90

Þjóðmál - 01.03.2020, Qupperneq 90
88 ÞJÓÐMÁL Vor 2020 Mannréttindi voru þó ekki uppfinning róttæklinganna frá 1968. Eins og sagn- fræðingurinn Mark Mazower hefur lýst voru þau að verulegu leyti viðbrögð eftirstríðs- áranna við alræðisstjórnarfari hins sigraða þjóðernissósíalisma, þar sem allt hafði þurft að víkja gegn alltumlykjandi valdi ríkisins. Hvað Vesturlönd varðaði voru þær áherslur sem birtust meðal annars í stofnsáttmála og mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og síðar í mannréttindasáttmála Evrópu þannig leið til að undirstrika hefð- bundna stjórnmálaarfleifð Vesturlanda, sem byggðist á hugmyndinni um takmarkað vald, réttarríkið og aðskilnaðinn milli ríkisins og hins borgaralega samfélags. Mannréttindi voru líka nýr merkimiði yfir réttindi þjóðernis minnihluta, sem Þjóðabandalagi millistríðs áranna hafði verið falið að vernda. Megintilgangur mannréttinda var þannig að endurreisa frjálslynda stjórnmálamenningu Vesturlanda, byggða á eldri hefð náttúru- réttarins. Í kjölfar stúdentabyltingarinnar fór mann- réttindaorðræðan hins vegar að blandast inn í þá almennu og varanlegu uppreisn gegn yfirvaldi og ríkjandi þjóðskipulagi sem einkenndi sjöunda og áttunda áratuginn. Þær urðu að eins konar áróðurstæki í „ róttæku menningarbyltingunni“, beint ýmist gegn markaðshagkerfinu og hvers kyns ójafnri skiptingu gæða; frjálslyndu þjóðskipulagi, í þágu „fórnarlambafræða“ akademíunnar og þeirra aðgerða sem þau fræði töldu nauðsynleg til að ná fram „algjöru jafnrétti;“ en þó mest af öllu í þágu ótakmarkaðs sjálfsforræðis einstaklingsins og leitar hans að algjörri frelsun og ósvikinni sjálfstjáningu – eða hugmyndarinnar um „jákvætt frelsi“. Í meðförum róttæklinga vildi uppruni mannréttindahugtaksins því gleymast og það breytti að miklu leyti um merkingu. Mannréttindi urðu eiginlega bara annað orð yfir hugmyndafræði stúdentabyltingarinnar. Þessi breytta áhersla hafði þó ákveðna hugmyndafræðilega erfiðleika í för með sér. Þannig taldi stúdentabyltingin allt vald jafngilda kúgun, en hún áttaði sig ekki á því að í hobbesískum heimi eru mannréttindi þýðingarlaus, enda ekkert skipulagt vald til að veita þeim gildi. Það er aðeins eftir að hið pólitíska samfélag verður til að hægt er að tala um mannréttindi, því aðeins vald – tak- markað vald – getur tryggt þau. Og það var einmitt á Vesturlöndum, í samspili kristinnar trúar, grískrar heimspeki og rómverskra laga – í Jerúsalem, Aþenu og Róm; í átökunum milli andlegs og veraldlegs valds; í tilvist fornrar lagahefðar, sem höfðingjar Vestur- Evrópu töldu sig bundna af; sem slíkt vald þróaðist og mannréttindi urðu til. Þau eru raunar eitt helsta pólitíska afrek vestrænnar siðmenningar, þeirrar hinnar sömu og sumir háværustu talsmanna þeirra í nútímanum reyna hvað harðast að jaðarsetja. Þannig hafa mannréttindi sjaldan þrifist utan Vesturlanda: ríki múslima hafa um þau allt aðra hugmynd, enda viðurkennir íslam alls ekki regluna um takmarkað vald, sem er þó grunnforsenda þess að mannréttindi í vestrænum skilningi orðsins geti þrifist; ekki frekar en Kína keisara veldisins eða kommúnistaflokksins. Takmarkað vald byggir á grunnreglu stjórn- málamenningar Vesturlanda, sem er meiri- hlutaræði ásamt vernd ákveðinna réttinda minnihlutans. Það var í krafti þeirrar reglu sem hið frjálsa og fullvalda pólitíska samfélag bjó til mannréttindahugtakið. Stúdenta- byltingin krafðist hins vegar óskoraðs sjálfs- forræðis einstaklingsins og lagðist gegn hvers kyns „menningarlegri innrætingu“ – og þar með hvers konar miðlun uppsafnaðrar visku í formi gilda og hefða vestrænnar menningar, sem róttæklingar litu hvort sem er á sem spillta af langri sögu undirokunar, fordóma og mismununar. Í stað þess að líta svo á að besta leiðin til að vernda mannréttindi væri að hlúa að þeirri klassísku stjórnmálahefð og menningararfi Vesturlanda sem gerði mann- réttindi möguleg yrði þvert á móti að jaðarsetja þá menningu í nafni menningarrelatívisma og abstrakt réttinda. Rökrétt afleiðing var sú að meirihlutavaldið þyrfti að víkja fyrir sérhverjum eins manns minnihluta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.