Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Síða 16
14
tafla 3. Línuril 2 sýnir þunga gimbranna í B- og C-flokki á fæti, er
þeim var slátráð, sem prósentu af þunga gimbranna í A-flokki á sama
tíma. Þungi gimbranna í B-flokki er 96.23% og í C-flokki 84.4% af
þunga gimbranna í A-flokki.
Eftir þunga á fæti að dæma, dregur það lítið úr þroska gimbra að
eiga lamb gemlingar, ef þær missa það strax, en gangi þær með lambi
yfir sumarið, dregur það 5 sinnum meira úr þyngdaraukningu þeirra
yfir árið, samanborið við að þær missi nýbornar. Algeldar gimbrar bæta
við sig frá 4—16 mánaða aldurs um 100% meira en dilkgengnar gimbr
ar. Það er því augljóst mál, að fösturmyndunin dregur lítið úr þroska
gemlinga, en mjólkurmyndun allt sumarið kemur í veg fyrir, að
gimbrarnar hafi náð eðlilegum þroska, þegar þær eru veturgamlar.
í næstu þáttum verður rætt um, að hve miklu leyti þungamunur g'eldu
'og' dilkgengnu gimbranna orsakast af mismunandi kjöt-, mör- og gæru-
þunga.
B. Áhrif á sláturafurðir.
Meðalþungi sláturafurða veturgömlu gimbranna í öllum flokkum,
ásamt kjötmagni í hlutfalli við þunga á fæti (kjötprósenta), er gefinn
í töflu 5.
Tafla 5. Þungi sláturafurða og kjötprósenta.
Weight of dressed carcass, pelt, loose fat and dressing percentage.
Meðaltal, kg og % Hlutföll (A-fl. = 100)
average, kilos and % proporlions (lot A = 100)
A-fl. B-fl. C-fl. A-fl. B-fl. C-fl.
lot A lot B lot C lot A lot B lot C
Fall kg dressed carcass 24.50 23.18 19.28 100 94.6 78.7
Gæra kg skin with wool 4.92 4.85 4.05 100 98.6 82.3
Mör kg kidney and caul fat 3.82 2.82 2.10 100 73.8 55.0
Afurðir alls kg total products . . . 33.24 30.85 25.43 100 92.8 76.5
Kjötprósenta dressing percentage Afurðir alls sem % af þunga á fæti total producls as % of 41.51 40.88 38.79 100 98.5 93.4
live-weight 56.4 54.4 51.1 100 96.5 90.6
Tafla 5 og línurit 2 sýnir hins vegar sláturafurðir og kjötprósentu
gimbranna í B-flokki, sem misstu, og gimbranna í C-flokki, sem gengu
með lambi, í hlutfalli við afurðir algeldu gimbranna i A-flokki. Hver
tegund afurða og samanlagðar afurðir í B- og C-flokki er reiknuð sem
prósenta af sörnu tegund afurða i A-flokki. Sýnir þetta glöggt, hvaða
áhrif það hefur á kjöt- og gæruþunga og mörsöfnun, að gemlingar eigi
lömb og missi þau nýborin eða gangi með lambi til hausts. Hlutfallsleg
áhrif á hinar ýmsu afurðir verða rædd hér í næstu þáttum.
a. Kjötprósenta. Tafla 5 sýnir, að allmikill munur er á meðal-
kjötprósentu flokkanna. Algeldu gimbrarnar (í A-flokki) hafa hæsta
kjötprósentu 41.51% af þunga þeirra á fæti, þar næst gimbrarnar, sem
misstu (í B-flokki) 40.88% eða 0.63% lægra en gimbrarnar i A-flokki