Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Síða 43
41
kg
Línurit 6. Áhrif fangs á fyrsta vctri á meðalþunga ánna á fæti frá 4 til 28 mánaða
aldurs effect of breeding tjearling ewes on their live-weight changes from
í to 28 months.
voru nokkru þyngri og þroskameiri haustlömb. Ef til vill eru báðar
þessar ástæður o. fl. að verki. Af þessum sökum má búast við, að eitthvað
minni munur geti komið í ljós við samanburð á þroska þessara áa
tveggja vetra gamalla eftir því, hvort þær voru geldar eða dilkgengnar
veturgamlar, heldur en cf gimbrarnar, sem fjallað er um í kai'la I,
hefðu lifað til tveggja vetra aldurs og verið gerður á þeim hliðstæður
samanburður þá.
Þegar gimbrarnar eru 16 mánaða, þá er rneiri meðalþyngdarmunur
á A- og B-flokki en var á þeiin 4 mánaða gömlum. Gimbrarnar i B-flokki
þyngdust frá 4—16 mánaða aldurs 3.67 kg' meira að meðaltali en þær
í A-flokki, og er þessi munur raunhæfur í 95% tilfella, tafla 28. Ekki
er unnt að skýra þennan mun, nema hetzt á þann veg, að eðlisbetri eða
bráðþroskaðri einstaklingar hafi af hendingu lent í B-flokki, þ. e. komið
upp lambi á öðru aldursári.
Tafla 28 sýnir, að dilkgengnu gimbrarnar í C-, D- og E-flokkum hafa
yfir árið, frá 4—16 mánaða aldri, að meðaltali aukið þunga sinn nokkurn
veginn jafnmikið, og sá litli munur, sem er á þyngdaraukningu þessara
flokka innbyrðis, er ekki raunhæfur. Hins vegar er raunbæfur munur
á þyngdaraukningu þessara flokka hvers um sig og þyngdaraukningu
A- og B-flokks, nema hvað munurinn á A- og D-flokki er aðeins minni
cn svo að vera raunhæfur í 95% tilfella, vegna þess hve fáir einstaklingar
eru i þessum flokkum.
Munur á meðalþyngd gimbranna í B- og C-flokkum, er þær voru
16 mánaða gamlar, nam 7.87 kg og var því aðeins 1.34 kg minni en
munurinn á alg'cldu og dillcgengnu gimbrunum i A- og' C-flokki í kafla I.
6