Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Qupperneq 55
53
7° J A-n. | n-n. § c-n. 0 D-n. [] E-n.
Línurit 8. Áhrif fangs á fyrsta vetri á meðalútvortismál ær-
fallanna 28 mánaða (B-fl. = 100) effect of breeding yearling
ewes on their average external carcass measurements at 28
months of age (lot B = 100).
er sagt (bls. 19). Niðurstöður á samanburði þessara mála i öllum
flokkum eru í samræmi við niðurstöðurnar í kafla I, C, bls. 19, og eru
frekari sönnun þess, að ekki dragi úr lengdarvexti beina í miðjurn út-
limum, þótt gimbrar komi upp lambi veturgamlar.
Mesta Jtijkkt skrokksins um augnakalla, G. G-málið er hæst í A-fl.,
274.8 mm, 4.4 mni lægra í E-flokki, tafla 37. Þessi munur er þó ekki
raunhæfur, tafla 38. Þetta mál er næstum því eins í C- og D-flokki, en
aðeins hærra í B-flokki. Munurinn á milli þessara þriggja flokka inn-
byrðis er þó ekki raunhæfur, tafla 38. Aftur á móti er munurinn á þessu
máli í A-flokki og B-, C- og D-flokki hvorum fyrir sig raunhæfur í
99% tilfella og munurinn á því i C- og E-flokki raunhæfur í 95% til-
fella. í hlutfalli við B-flokk er þykkt skrokksins við augnakalla 4.7%
meiri í A- en B-flokki og 3.0% meiri í E- en B-flokki, en í C-flokki 0.8%
minni og í D-flokki 1.0% minni en í B-floklci, tafla 37 og línurit 8.
Þessar niðurstöður sýna, að það hefur allveruleg áhrif á þetta mál,
hvort ærnar ganga með lambi eða eru lamblausar tvævetlur, en mjög
Htil og óraunhæf áhrif, hvort þær gengu með lambi gemlingar eða voru
þá algeldar. Ærnar í C-flokki hafa aðeins 0.8% lægra G-mál en ærnar
í B-flokki. Munurinn á þessu máli í hliðstæðum flokkum af vetur-
görnlum ám í C- og A-flokki í kafla I, C, tafla 11, bls. 19, var 3.7% og
raunhæfur í 99% tilfella, tafla 12. Virðast því ær, sem ganga með
lambi gemlingar og' fá af þeim sökum þynnra fall um augnakalla, ná
upp því þroskatapi að mcstu leyti frá 16—28 mánaða aldurs.