Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Side 62

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Side 62
60 °/0 J A-fl. y C-fl. Q D-fl. [j'E-fl. Línurit 10. Áhrif fangs 6 fyrsta vetri á meðalmál ærfallanna við aftasta rif 28 mánaða (B-fl. = 100) effect of breeding yearling eœes on their average internal car- cass measurements at 28 months of age (lot B = 100). málunum, en minnstur á þeim útvortismálum, sem ákveðast eingöngu eða nær eingöngu af lengdarvexli beina og fótleggjarmálunum. Áhrif á vöðvaþroska. Munurinn á milli fíokka á hinum 3 vöðva- málurn A, B og X og einnig á lögun bakvöðvans B/A • 100 er mun minni á tvævetlunum en á veturgömlu gimbrunum, sjá kafla I, bls. 26, og línurit 5 og 10. Einkum er það áberandi á B- og X-málunum. Þetta sýnir, að ærnar, sem náðu ekki eðlilegum þroska á þykkt vöðva fram að 16 mánaða aldri vegna þess, að þær gengu með lainbi, hafa að verulegu leyti unnið þetta þroskatap upp frá 16—28 mánaða aldurs. Breidd bakvöðvans, A. Þetta mál er líkt í öllum flokkum, aðeins hæst í B-flokki, en lægst í E-flokki, 4.9% lægra en í B-flokki, tafla 42. Munurinn á flokkunum er langt frá því að vera raunhæfur, sem eðli- legt er, þar sem ekki var raunhæfur munur milli flokka á þessu máli við 16 mánaða aldur, kafli I, bls. 27. Tvævetlurnar hafa næstum þvi alveg jafnbreiða bakvöðva og veturgömlu gimbarnar, sjá töflur 19 og 42 og linurit 5 og 10, sem sýnir, að bakvöðvinn hefur tekið út fullan þroska á breiddina við 16 mánaða aldur.

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.