Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Síða 85
Þakkarorð.
Um leið og þessi fyrsta tilraunaskýrsla frá fjárræktarbúinu á Hesti
kemur út, vil ég nota tækifærið og þakka þeim mörgu, sem hafa veitt
mér mikilsverða aðstoð bæði við rannsóknir þær, sem lýst er í þessari
skýrslu og fjölmargar aðrar rannsóknir og tilraunir, sem gerðar hafa
verið á Hesti síðan búið var stofnað, og enn er óslcrifað um. Fyrst og
fremst vil ég færa fyrrverandi og núverandi bústjórum, þeim Páli Jóns-
syni og Gu&mundi Péturssyni og öðru starfsfólki búsins mínar beztu
þakkir fyrir vel unnin störf. Sérstaklega ber að þakka að bústjórarnir
og aðrir starfsmenn búsins yfirleitt hafa ávallt skilið, að búið er fyrst
og fremst tilraunabú og öll störf í sambandi við tilraunirnar hafa verið
leyst af hendi með tilskilinni nákvæmni á réttri stundu, án tillits til
þess, hve vinnudagurinn hefur orðið langur.
Þá vil ég og þakka Bændaskólanum á Hvanneyri og Kaupfélagi
Borgfirðinga fyrir að veita mér leyfi og aðstöðu til þess að framkvæma
nauðsynlegar rannsóknir á kjötinu af Hestsfénu um leið og það hefur
verið lagt inn á þessum stöðum.
Enn fremur vil ég þakka þeim kennurum Hvanneyrarskóla, Stefáni
Jónssyni og Gunnari Bjarnasyni ásamt nemendum framhaldsdeildar-
innar á Hvanneyri á undanförnum árum fvrir mikilsverða aðstoð við
mig í sambandi við afurða- og kjötrannsóknir þær, sem ég geri á hverju
hausti á sláturfé Hestsbúsins, en sein óframkvæmanlegar eru einum
manni á þeim tíma, sem til umráða er á hVerju hausti. Þá vil ég einnig
þakka Pétri Gunnarssyni tilraunastjóra og Eyvindi Jónssyni ráðunaut
og fleirum, sem of langt yrði upp að telja, fyrir veitta aðstoð við afurða-
rannsóknirnar sum haustin. Sérstaldega ber að þakka þessa aðstoð
Hvanneyringa og annarra, vegna þess að hún hefur verið veitt án endur-
gjalds af einskærum áhuga fyrir málefninu, hjálpfýsi og velvilja í
minn garð.
Að lokum við ég þakka Metúsalem Stefánssyni fyrrverandi búnað-
arinálastjóra fyrir að lesa yfir handritið að skýrslu þessari, sem og
flestum öðrum skýrslum, sem komið hafa út á vegum Búnaðardeildar,
og fyrir aðstoð við prófarkalestur.
Halldör Pálsson.