Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 25

Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 25
fjallaheimi, leið mér vel, það gerði blessað veðrið. Áfram var haldið, stöðugt upp á móti. Eina á þurfti ég að vaða og fannst mér hún köld, því töluvert krap var í henni, en ég óð berfættur. Móðir mín hafði látið nestibita í tösku mína og tók ég hann upp þegar mér fannst vera nálægt hádegi, en enga klukku hafði ég. Át ég bitann minn og drakk vatn úr læk með og fannst mér þetta góð hressing. En ekki var til setunnar boðið. Yfir heiðina skyldi komast áður en dimmdi, hvað sem það kostaði, og hljóp ég nú annað slagið. Lokst kom að því, að ég sá hús upp á hæð framundan, og létti mér stórum við það, því ég vissi að þetta var sæluhúsið og þar var leiðin hálfnuð. Herti ég enn á ferð minni og kom brátt að húsinu. Stóðu pósthestarnir undir húsveggnum og átu hey, sem þeim hafði verið gefið, en var geymt í húsinu handa þeim í vetrar- ferðum. Innan úr húsinu heyrðist hlátur og mannamál, en úr hlíðum Tröllakirkju kváðu við skot og rjúpnahópar sáust flögra til og frá. Þóttist ég vita að einhverjir úr hópnum væru þar við rjúpnaveiðar. Nú hugsaði ég mér að skjóta póstinum „ref fyrir rass“ gerði ekkert vart við mig, en flýtti mér framhjá, sem mest ég mátti. Það var líka notaleg tilfinning að vita af póstlestinni á eftir sér. Fór nú að halla undan fæti, en degi var líka tekið að halla. þegar niður af heiðinni kom, þurfti ég að vaða á. alldjúpa að mér fannst. Nennti ég ekki úr sokkunum, því nú var þreytan farin að segja til sín. Tók áin mér rúmlega í hné. í rökkurbyrjun náði ég niður að Fornahvammi. Mér fannst of snemmt að setjast að, en fór þangað heim til að spyrja til vegar. Var mér sagt, að til næsta bæjar, sem heitir Sveinatunga, væri rúmlega klukkutíma gangur. Fannst mér það hæfilegt og ákvað að halda þangað. Áður en ég fór bað ég að gefa mér að drekka, því ég var orðinn leiður á klakavatninu á heiðinni. Var strax komið með mjólk, sem hafði verið blönduð lítið eitt með heitu vatni, svo hún var aðeins volg. Fann ég að þetta var hinn besti drykkur fyrir sveittan og göngulúinn mann, og enginn hætta á að hroll setti að mér, þótt nú væri mikið farið að kólna. Sá ég að hér vissi fólkið hvað mönnum væri fyrir bestu, enda alvant að taka á móti ferðamönnum á öllum árstímum. 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.