Strandapósturinn - 01.06.1981, Blaðsíða 84
Árið 1853 kom og Jóhannes forgilti frá Reykjavík. Var það skip
Grosseraverslunarinnar og með því Jón Stefánsson frá Straumi á
Skógarströnd, hét Clausen skipstjóri. Ekki kom það skip oftar.
Þá kom og einu sinni Ásgeir Ásgeirsson frá Isafirði síðar etazráð.
Hét skip hans Lovísa. Þorlákur kaupmaður Jóhnsson frá
Reykjavík kom og eitt sumar á ensku skipi og ýmsir fleiri komu,
er ekki verða hér taldir.
Það var venja spekúlanta að taka sér einn hátíðisdag. Völdu
þeir til þess afmæli Clausens gamla í Stykkishólmi. Fóru þeir þá
út að Reykjalaug og voru þar sem hveralækurinn skiftist og síðan
er kallaður Kaupmannahólmi. Höfðu þeir með sér klyfjahesta
og á þeim svínsflesk, skonrok, öl, brennivín og romm. Voru
þangað allir velkomnir og hverjum veitt eftir vild. Notuðu hér-
aðsmenn vel boðið og var aðsókn sem á hvalfjöru. Enginn kven-
maður sótti þá samkomu.
Annars var yfirleitt hver dagurinn öðrum líkur meðan spekú-
lantarnir voru við Borðeyri.
Klukkan að ganga 6 á morgnana fór kokkurinn á fætur og
ferjumaðurinn. Var þá oft komið margt fólk á tangann. Gekk svo
ferjan milli skips og lands allan daginn og langt fram á nótt og
oftast hlaðin af fólki og ull og annarri vöru. Allir fengu frítt far.
Flestir spekúlantar létu hönd selja hendi, en Bjarni Sandholt
og Bryde lánuðu nær eftir vild.
Um sama leyti og spekúlantar fóru að koma á Borðeyri komu
þeir einnig á Skeljavík við Steingrímsfjörð, en hún er litlu innar
en nú stendur Hólmavíkurkaupstaður; var útlend vara afhent
þar, en svo komu bændur aftur með sína vöru á áttæringum til
Borðeyrar.
Enginn kofi var á Borðeyri fyrstu árin sem spekúlantar komu
þar, og ekki fyrr en Pétur Eggerz reisti þar hús árið 1860. Það var
24 álna langt og 12 álna breitt og stendur þar enn.
Hann tók vörur þær af skipum Clausens sem ekki gengu út og
verslaði með þær. Síðan stofnaði hann verslunarfélag ásamt
þeim Páli Vídalín í Tungu og Skaptasen lækni. Hét það Versl-
unarfélag Húnvetninga og var hlutafélag, en hluturinn var 25
dali.
82