Strandapósturinn - 01.06.1981, Blaðsíða 81
Snemma morguns dag einn í júníbyrjun árið 1848 í norðan
stórgarði og þoku, svo illa sá til sólar urðu menn varir við sigl-
ingu fyrir utan Hrútey. Skipið hélt kyrru fyrir um stund, hefur
ekki þótt árennilegt að leggja inn í brimskaflinn, þar fyrir innan.
Svo lagði það inn Hrúteyjarsund og beint inn á Borðeyrarhöfn.
Enginn hafnsögumaður var með skipinu en maður frá Búðum er
hafði komið einu sinni til Hrútafjarðar, og þótti þetta áræði
mikið.
Þenna sama dag voru gefin saman þrenn hjón á Stað í
Hrútafirði. Var einn þeirra er þá kvonguðust Daníel danne-
brogsmaður á Þóroddstöðum (var veisla mikil haldin á Þórodds-
stöðum, matur og brennivín) Jónsson, bróðir Þorsteins á
Broddanesi. Annar Björn Daníelsson frá Tannstaðabakka (síðar
á Broddanesi, drukknaði 1856) og hinn þriðji Guðmundur
Zakaríasson á Stað, síðar á Broddanesi. Má eftir þessu finna hver
dagur þetta var.
Þetta fyrsta Borðeyrarskip hét Ungi Svanurinn, var það tví-
möstruð skonnorta 48 lesta en skipstjórinn hét Sörensen; var hann
einn hinn besti skipstjóri Clausens og hugaður vel. Sá hét I.C.
Brant er rak verslunina á skipinu, var hann einn af bestu mönn-
um Ciausens, þótti Clausen mjög vænt um hann, og lét hann sjá
um reikninga sína í Höfn. Brant þessi var mesti gæðamaður. Þá
var og með skipinu Árni Sandholt kaupmaður og félagi Clausens.
Hann var grænlenskur í aðra ættina, en annars frá Sandhaugum
í Þingeyjarsýslu. Höfðu þeir Brant verkaskifti þannig að Brant
var við bókina en Árni var viktarinaður uppi á þilfari.
Það var uppi fótur og fit í nærsveitunum er skipkoman
spurðist og fóru menn þangað í hópum til kaupskapar og var því
sem næst öll varan keypt upp á einni viku.
Næstu tvö ár kom engin sigling til Borðeyrar, en síðan fóru
spekulantar að koma og urðu allmargir sum vorin.
Árið 1850 kom þangað Hillebrant frá Hólanesi, sá er byggði
þar fyrst verslunarhús og með honum félagi hans Bergmann
(hann var kallaður Bergmann „ístrumagi“. Er Bergmann dó tók
Hillebrant Bryde í félag með sér). Hét skip þeirra
Fortuna en skipstjóri Tönnesen. Það ár kom og Jacobsen
79