Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1981, Side 26

Strandapósturinn - 01.06.1981, Side 26
Nú fór rökkrið að síga á og því betra að hraða ferðinni. Eg reyndi að hlaupa við og við, en var þá orðinn töluvert dasaður. Ég man hvað mér fannst draugalegt í giljunum, sérstaklega þar sem gatan lá yfir svokallað Kattarhrygg, en þar var hún á ör- mjóum gilbarmi og Norðuráin á hina hönd. Þessi leið var lögð niður þegar bílvegur var lagður um dalinn. Það var komið kolamyrkur þegar ég kom að Sveinatungu. þar var stórt steinhús, eitt hið fyrsta sem byggt var í sveit hér á landi. Hvergi sást Ijós í glugga, en ég gekk að dyrum og barði þrjú högg, eins og siður var í þá daga. Góð stund leið og enginn kom, svo ég barði aftur. Þótti mér nú vandast málið, ef enginn væri heima. Jú eitthvert skrölt heyrðist að innan. Hurðin opnaðist og út kom fullorðinn karlmaður. Ég heilsaði og spurði hvort hægt væri að fá gistingu. En nú vandaðist málið. Maðurinn æmti hvorki né skræmti, en pataði eitthvað út í loftið með höndum og fingrum. eg spurði aftur í hærri tón hvort hægt mundi vera að fá gistingu og hvort húsbóndi eða húsmóðir væru heima. Sama patið með höndunum. Nú fór alvarlega að fara um mig. Var ég kominn á einhvern vitlausraspítala? En hér sannaðist sem oftar, að þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Aftan við manninn birtist ung stúlka, og oft hef ég glaðst við að sjá unga stúlku, en líklega aldrei meir en í þetta skipti, því hún gat talað. Sagði hún gistingu velkomna, en húsbóndi og húsmóðir væru ekki heima. Hefðu farið vestur í Dali, en væru væntanleg heim um kvöldið eða nóttina. Út af hegðun mannsins gaf hún þá skýringu, að hann væri mállaus, en því fyrirbrigði hafði ég ekki kynnst fyrr. Bauð hún mér til stofu, en fór svo fljótt aftur, sennilega til eldhúsverka. Eg var votur upp fyrir hné, því margar ár og læki hafði ég vaðið um daginn og einnig var ég sveittur af göngunni. Setti nú brátt að mér kuldahroil, því engin upphitun var í stofunni, en talsvert frost úti. Eg kunni ekki við að fara úr bleytunni, án þess að tala við neinn og sat nú þarna um stund. Meðan á þessu stóð og ég skalf af kuldahrolli, heyrði ég hófa- dyn og bcislahringl neðan frá veginum, og þóttist vita að þar færi pósturinn, sem og líka var. Hafði honum dvalist þetta við rjúpnaveiðarnar. 24
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.