Strandapósturinn - 01.06.1981, Qupperneq 56
Annað nærtækt dæmi um forystuhlutverk Strandamanna
er það, hve bændur á Ströndum hafa skarað fra úr á
vissum sviðum landbúnaðar, einkum sauðfjárræktar, en þar
hafa þeir náð lengra en allir aðrir landsmenn og eru
Þingeyingar þar ekki undanskildir. Heimildir fyrir þessari
fullyrðingu eru opinberar skýrslur, sem vitna um vænleika
lamba og afurðir á vetrarfóðr-aða kind.
Enn athyglisverðara og þýðingarmeira hlýtur þó að teljast, að
bændur hér um slóðir hafa leyst þann mikla vanda sem samfara
er fóðuröflun í óþurrkasumrum með því að verka mestallan
heyfeng sinn sem vothey og eru því óháðir duttlungum veðrátt-
unnar, sem löngum hefur leikið menn grátt um heyskapartím-
ann. Og þessi heyverkunaraðferð er svo sannarlega ekkert neyð-
arúrræði, þvert á móti, því að reynslan bendir ótvírætt til þess,
að hún sé ekki aðeins öruggasta ráðið til að fá gott og næringar-
ríkt fóður, heldur er hún einnig fljótvirkasta og ódýrasta hey-
skaparaðferðin, ef rétt er að verki staðið. I þessu tilliti hafa
bændur á Ströndum og Ingjaldssandi algjöra sérstöðu, sem
ráðunautar og leiðtogar vitna oft til þegar nefna þarf dæmi um
fyrirmyndarbúskap.
Um menningar- og félagslíf innan sýslunnar er það sannast að
segja, að þar hefur markið oft verið sett furðu hátt síðustu öldina
og reyndar fyrr. Hér var stofnað eitt af fyrstu Iestrarfélögum
landsins árið 1845 og var þaðnefnt Lestrarfélag Tröllatungu-og
Fellssafnaða.
Þá féll það og í hlut Strandamanna að reisa fyrsta heimavist-
arskólann fyrir börn og unglinga á Islandi, en það var Heydals-
árskólinn, sem byggður var 1896. Að báðum þessum menning-
arafrekum mun ég koma síðar, þar sem þau mynduðu frum-
gróðurinn á akri framfaranna og eru því girnileg til fróðleiks.
Síðar komu til sögunnar mörg félög eins og búnaðarfélög, lestr-
arfélög, ungmennafélög og kvenfélög, sem öll hafa unnið og
vinna enn að menningar- og félagsmálum með miklum sóma,
hvert fyrir sitt sveitarfélag. Of langt mál er að rekja nöfn og störf
einstakra félaga, en þó er ljóst, að fyrir tilverknað þeirra hefur
mannlífið í sýslunni orðið betra og ánægjulegra og starfsemi
54
J