Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 59

Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 59
Að stofna skóla við þær aðstæður var slíkt stórátak og menn- ingarafrek fyrir fámenna sveit, að við hljótum að undrast og dást að þeim Strandamönnum sem slíku Grettistaki lyftu til fram- dráttar fræðslumálum í sýslunni. Já, Strandamenn hafa sann- arlega lengi sterkir verið. Síðar komu skólar á Borðeyri, Hólma- vík, Finnbogastöðum, Drangsnesi, Klúku í Bjarnafirði og nú síðast á Broddanesi. Allir þessir skólar eiga einhverja baráttu- sögu að baki, en hér verður aðeins staldrað við fáeina þætti úr sögu þess fyrsta, Heydalsárskólans. Það hlýtur að vekja athygli hve rætur Heydalsárskólans teygja sig langt aftur í tímann. Hann á tvímælalaust upphaf sitt að rekja til þessarar framfara- öldu, sem Lestrarfélag Tröllatungu og Fellssafnaða hratt af stað, laust fyrir miðja 19. öldina. Eins og áður er getið þá var þetta eitt af fyrstu lestrarfélögum á landinu og reyndar held ég, að ekki sé hægt að gera menningarsögu Strandamanna viðhlítandi skil án þess að draga starfsemi þess fram í dagsljósið. Eins og kunnugt er lá Alþingi niðri á fyrri helmingi 19. aldar. Á þeim eymdar- og niðurlægingarárum lágu Islendingar í eins konar öskustó. Lestrarfélagið áðurnefnda var stofnað til að hefja Strandamenn upp úr öskustónni og kenna þeim að bera höfuðið hátt. Það voru þrír ungir menn með framfara- og frelsishugsjónir Jóns Sigurðssonar að bakhjarli, sem ákváðu að láta til skarar skríða 13. desember árið 1845 í erfisdrykkju Einars Jónssonar dbm. að Kollafjarðarnesi . . Þessir hvatamenn félagsins voru Halldór Jónsson prestur í Tröllatungu og synir Einars Jónssonar þeir Ásgeir á Kollafjarðarnesi og Torfi á Kleifum á Selströnd. Félagssvæðið var í fyrstu miðað við Tungusveit og Kollafjörð en vegna vaxandi vinsælda var félagið opnað fyrir alla sýslubúa árið 1849. Náðu áhrif félagsins þannig ótrúlega víða og jafnvel voru dæmi um félagsmenn í nærliggjandi sýslum. Hér verð ég að skjóta merkilegu atriði inn í frásögnina, sem varða endalok félagsins. En það var einmitt stærð svæðisins og fjöldi meðlimanna, sem varð félaginu síðar að falli, með því, að enginn treysti sér til að taka að sér félagsfundina eftir að Ásgeir Einarsson flutti frá Kollafjarðarnesi að Þingeyrum árið 1861. 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.