Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 62

Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 62
lestrarfélagið endurreist og bókaleifum gamla félagsins safnað saman fyrir forgöngu séra Arnórs Árnasonar á Felli. En sá var munurinn, að nýja félagið hugði ekki á nein stórvirki í atvinnu- og menningarmálum, það helgaði sig bókunum einum. Þetta félag starfaði þó ekki lengi, því að fljótlega var bókunum skipt milli Kirkjubóls- og Fellshreppa og stofnuð tvö sjálfstæð lestr- arfélög, sem enn eru við lýði. Sýsluskólahugsjónin var lífseig. Hún var geymd en ekki gleymd í nær 2 áratugi. Og sumarið 1880 hófst almenn fjár- söfnun í allri Strandasýslu og skyldi fénu varið til að byggja sýsluskóla. Þau samskot fóru fram á vegum sýslunefndarinnar og er almennt talið að sýslunefndarmaðurinn og bændahöfðinginn Benedikt Jónsson á Kirkjubóli í Tungusveit hafi verið aðaldrif- fjöðrin í því máli. Alls nam samskotaféð um 1000 kr. og var því varið til að kaupa hluta í jörðinni Fell í Kollafirði, þar sem skólanum var ætlaður staður. Nú skorti 800 kr. á að gjafaféð entist til jarðakaupanna og enn var eftir að byggja skólann, því að bæjarhúsin á Felli voru ekki hæf til skólahalds. Nýrra sam- skota var þó ekki leitað, því að um þær mundir dundu harðindin miklu yfir, er krepptu aðsýslubúum og landsmönnum öllum í sjö ár. Samtimaheimild telur, að þá hafi mannfelli ekki verið forðað, ef gjafakorns- og hallærislána hefði ekki notið við. Þar með stöðvaðist skólabygging Strandamanna í annað sinn. En þótt húsakynni væru léleg á Felli var reynt að halda þar uppi kennslu sjálfan frostaveturinn mikla 1881—2, þrátt fyrir erfiðar aðstæður til skólahalds. Strandasýsla veitti 100 kr. styrk til þeirrar kennslu og er það, að því er ég best veit, fyrsta fjár- framlag sýslunnar til menntamála. Var þar myndarlega af stað farið, því að upphæðin samsvarar 1 milj. króna í dag. Strax og hallærinu létti og hagur manna blómgaðist að nýju var skólamálið tekið á dagskrá. Og í nóvembermánuði árið 1891 lagði Guðmundur hreppstjóri Bárðarson er þá bjó á Kollafjarð- arnesi fram teikningu af hinu fyrirhugaða skólahúsi. Teikningin er geymd á þjóðskjalasafni: Fellsskólamál. Þrír veggir hússins skyldu vera úr torfi, en hinn fjórði úr timbri þ.e.a.s. framhliðin. En það sem vakti mesta athygli var, að þakið á þessari fyrir- 60 J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.