Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 116

Strandapósturinn - 01.06.1981, Page 116
verkaður með þessari aðferð þornaði, sveigðust flögurnar út frá miðju og líktist hnausinn þá helst harmonikubelg sem dreginn er út öðrumegin. Enn ein aðferð var að kljúfa ekki hnausana en láta þá þorna í heilu lagi, ef óþurrkar voru reyndist þetta oft illa, meðan hlóða- eldhús voru, voru ekki mikil óþægindi að brenna mó sem svona var verkaður en þegar eldavélar komu til sögunnar var hús- móðirin eða eldabuskan ekki hrifin af að kljúfa þurra og harða móhnausa til að koma þeim í eldavélina. Þegar túnaslætti var lokið og áður en farið var á engjar var mórinn tekinn saman „hreykja mónum“, var honum þá hlaðið saman í svokallaða „hrauka“, það var gert á þann hátt að valinn var staður þar sem minnst hætta var á að vatn gæti safnast við hraukinn, því næst var móflögum raðað í hring upp á rönd og voru það kallaðar undirstöður þá var fyllt inn í hringinn með móflögum, því næst voru móflögurnar lagðar flatar á undir- stöðuna en fyllt jafnóðum inn í, hleðslan var látin dragast að sér jafnóðum og hraukurinn hækkaði, svo hann varð toppmyndaður og var þetta lag á hrauknum ágæt vörn í rigningu. Þar sem mikill mór var tekinn upp urðu hraukarnir mjög margir og var gaman að sjá yfir þurrkvöllinn þegar búið var að hreykja món- um. Að afloknum göngum var farið að flytja móinn heim til bæjar, hann var fluttur á hestum því önnur farartæki voru ekki til nema þar sem stutt var að fara og hægt var að nota kerrur eftir að þær urðu almennings eign. Þegar mór var fluttur heim á hestum var algengast að flytja hann í stórum pokum, en áður en þeir urðu algengir voru mikið notuð „Hrip“, þau voru þannig að smíðaðir voru stórir rimla- kassar með lausum botni og var hægt að hleypa niður úr þeim með einu handtaki þegar heim kom en það varð að láta móinn upp í þau í mólandinu, hver hestur bar tvö hrip að sjálfsögðu og voru þau ýmist tekin niður til að fylla þau eða þau voru fyllt á hestinum og var það algengara ef konur og unglingar voru við heimreiðsluna. Þá var venja að láta allmikið magn af mó í „Vetrarhlaða“, oft 114
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.