Strandapósturinn - 01.06.2014, Síða 53
51
próf astur í Flatey, Þorvaldur, umboðsmaður í Hrappsey (hann
var einna fyrstur Íslendinga til að læra búfræði), og Matthías
bóndi og hreppstjóri á Kjörseyri. Guð mundur Ögmundsson og
systir hans, Kristín, bjuggu á Fjarðarhorni frá 1898–1954 og ráku
um fangsmikinn búskap. Byggðu þau tvílyft íbúðarhús úr stein-
steypu 1914 og létu reisa rafstöð knúna vatnsafli úr bæjar læknum
1920 auk annarra framkvæmda. Þau systkin tóku í fóstur og ólu
upp frænda sinn, Einar Guðnason, er síðar varð prestur í Reyk-
holti. Árin 1965–1970 var þáverandi bóndi á Fjarðarhorni, Jósep
Rósin karsson, að byggja upp húsakostinn og þá var bæjarstæðið
flutt suður á sléttlendið sem heitir Hólmar en áður hafði bóndinn
hafið þar mikla túnrækt.
Upp frá leirunum í fjarðarbotninum, rétt norðan við gamla
bæjarstæðið, liggja fornar götur yfir heiðina vestur í Dali. Þær
kallast Sölvamannagötur og eru svo nefndar vegna þess að á
öldum áður fóru menn þessa leið til sölvatekju í Stórholtsfjöru í
Saurbæ í Döl um. Þessar götur eru snilldarvel lagðar því að heiðin
er víða votlend og vandfarin af þeim sökum. Á Sölvamannagötum
má sjá sums staðar að grjót hefur verið borið í keldur til að brúa
þær. Það eru elstu vegabætur sem þekkjast hér um slóðir. Í ferða-
bók Eggerts Ólafs sonar og Bjarna Pálssonar er heiðin köll uð
Sölva mannaheiði en í dag köllum við heiðina Laxárdalsheiði
enda eiga tvær Laxár upptök sín á heiðinni. Önnur Laxáin fellur
í Hrúta fjörð, hin niður Laxárdal í Dalasýslu í Hvammsfjörð.
Úr landi Fjarðarhorns, norðan við gamla bæjarstæðið, hefur
verið reist smábýli sem heitir Markhöfði eftir samnefndu ör nefni
þar á sjávarbakkanum. Sá höfði hefur sennilega einhvern tímann
verið leiðarmerki um hvar fara skyldi yfir leirurnar í fjarðar botn-
inum á fjöru. Litlu norðar er Reiðsteinn sem áður var nefnd ur og
gamla leiðin yfir leirurnar ligg ur hjá. Þess skal getið að það er
samdóma álit kunnugra að leirurnar hafi lengst fram á síðustu
áratugum vegna framburðar úr Hrútafjarðará og mar bakkinn sé
nú norðar en hann var talinn. Þar með hefur það gerst að hægt
er að fara yfir leirurnar á háfjöru utar en áður þótti ráðlegt.
Valdasteinsstaðir
Nafn bæjarins er dregið af stórum steini er stendur neðan vegar
niður undir sjó en sést af vegi. Þessi steinn heitir Valdasteinn,