Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 85
83
hópnum sér fyrir hendur að mæla fyrir göngubrúm sem ekki var
vanþörf á. Valdi hann þeim stað þar sem áin rennur í tveim
þröngum kvíslum efst á Þröskuldunum. Staðkunnugur var hann
á þessu slóðum og mætti segja mér að lengi hafi búið með honum
áform um þessa framkvæmd.
Mælingin var þannig gerð að kastað var steini með spotta í yfir
kvíslar árinnar þar sem álitslegast þótti að brýrnar skyldu settar.
Fékkst þannig vitneskja um hversu langir brúarbitarnir þyrftu að
vera. Göngu þeirra félaga lauk í Ófeigsfirði í þetta skipti sem og
oft síðar.
Sumarið eftir, þ.e. í ágúst 1985, var hafist handa við verkið eftir
nauðsynlegan undirbúning. Verkfræðingurinn Haraldur Svein-
björnsson frá Ófeigsfirði, sem verður að teljast frumkvöðull að
framkvæmdinni, hafði gert teikningar af mannvirkinu. Pétur Guð-
mundsson í Ófeigsfirði hafði valið hæfilega löng rekaviðartré
sem burðartré, fjögur að tölu. Er þá fátt eitt nefnt sem huga
þurfti að áður en verkið gæti hafist. Á ákveðnum degi mættu
menn við brúna yfir Hvalá í Ófeigsfirði með ýmis verkfæri og
efni. Þann dag var vont í sjóinn til efnisflutninga og lengra varð
ekki komist á bíl. Var þá hér kominn allstór hópur sjálfboðaliða,
á að giska tíu–tólf manns. Auk þeirra voru mættir fjórir af ferða-
löngunum fimm sem komu af Hornströndum árinu áður eins og
fyrr er getið. Borin voru öll smíðatól sem á þurfti að halda, svo
og efni sem minna fór fyrir, frá Hvalárbrúnni um Ófeigs fjarðar-
strönd og Bása í Eyvindarfjörð. Rekaviðartrjánum hafði Pétur
slefað með bát sínum á staðinn. Trén voru þung og voru þau
flutt úr fjörunni á brúarstæðin með því að tólf–fjórtán manns
lyftu þeim með köðlum og báru á öxlum sér á staðinn.
Þá var hægt að byrja brúarsmíðina. Stuttlega má gera því skil
hvernig gengið var til verks. Undir alla brúarendana var settur
sinkhúðaður þverbiti festur niður í klöpp með fjórum teinum,
einnig sinkhúðuðum. Við höfðum tekið með í förina vel með-
færilegan höggbor. Boruð var 30 cm hola fyrir hvern tein niður
í klöppina og þeir festir með torogripi. Burðartrjánum var kom-
ið fyrir á undirstöðunum. Þann dag var unnið að smíðinni eins
lengi og dagurinn entist. Næsta dag kom síðan mikill mann söfn-
uður allt frá Trékyllisvík og norðan af Dröngum og var þá brúar-
smíðinni lokið þann dag að undanskildum minni háttar frágangi.