Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 105
103
verið seld á uppboði á Kolbeinsá 17. október 1825 og reyndist
„stervbúsins höfuðsumma“ vera 52 rbd. 62 sk. Kostnaður við
sjúkralegu í viku og síðan útförina dróst nú frá og útistandandi
skuldir voru nokkrar fyrir matvæli og ærfóður, en jafnframt við
Sigríði í Stóru-Ávík fyrir húsaleigu og „hjallalán fyrir hákall
hans“. Skipti fóru fram að Melum 20. júní 1826 og það sem
afgangs var skuldum og kostnaði fór til barnanna; fékk Ólöf 6
rbd. 87 sk. eða helming á móti Jóni sem fékk 13 rbd. 78 sk.,
nokkuð sem var í fullu samræmi við gildandi lög.12
Hér er komin svipmynd af húsmanni langt að komnum sem
tileinkaði sér háttu heimamanna og aflaði sér lífsviðurværis meðal
annars með verkun á hákarli sem hann að öllum líkindum
fékk í hlut úr veiðum sem hann líklega tók sjálfur þátt í. Jón
Sverrisson átti nóg til að geta verið húsmaður með eigin rekstur,
ef svo má segja, og kjör hans voru svipuð því sem Friðrik Frið-
riks son reyndi að skammta sér sem ólöglegur lausamaður í
Kald rananeshreppi nokkru síðar. Veturna 1839–1841 var hann
vinnumaður á tveimur bæjum upp á hálfan hlut en veturinn
eftir það í Sandnesi, laus að þriðja hluta en vinnumaður að öðru
leyti fyrir „¼ part síns hlutar úr hákalls og fiskiabla“. Friðrik
útskýrði störf sín eftir það við yfirheyrslur 22. maí 1843: „Ég
fór á Gjögur til róðra með góu í fyrra með hálfa útgjörð frá
sjálfum mér en hálfa frá hreppstjóranum og dvaldi þar til messna,
síðan var ég í Hrófbergshrepp í kaupavinnu um sláttartímann,
og dvaldi þar oftast fram undir veturnætur, en veik þá að
Hellu til Guðmundar, hvar ég dvaldi til þess vika var eftir af
þorra, og fór svo á Gjögur í fyrstu viku góu, og hefi verið þar
síðan, og gjört mig sjálfur út þangað“. Fyrir þetta var hann
dæmdur til 12 vandarhagga hýðingar og Guðmundur í átta
ríkis dala sekt fyrir að leyfa honum að vera í trássi við bann sem
hreppstjóri hafði gefið út og látið vinnukonu sína fara með á
milli bæja.13
Verkaður hákarl er tilgreindur í nokkrum dánarbúsuppskrift-
um og eru dæmin sem fylgja tæmandi fyrir Árneshrepp á þessum
árum.14 Dagsetningar miða við skráningu dánarbús. Vætt var átta
fjórðungar og fjórðungur 20 merkur: