Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 111

Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 111
109 Næstu árin var hafður sami háttur á skýrslugerð og uppboðum. Miklar sveiflur voru á milli ára og stundum veiddist ekki neitt. Jón sýslumaður greindi amtmanni frá því 8. desember 1836 að ekkert hefði veiðst í tvö ár vegna hafíss. Gísli Konráðsson nefnir ekki síðara árið en segir frá því að um sumarmál 1835 hafi verið svo mikill hafís að ekki varð róið á Gjögri.32 Tekið er fram í dómabók sýslunnar þegar hákarlsafli var enginn, til að mynda í Árnesi fjögur ár í röð eða 26. maí 1834, 25. maí 1835, 11. júní 1836 og 24. maí 1837, en líka í Kaldrananesi og Árnesi 11. og 13. júní 1827.33 Árið 1831 voru aftur á móti 17 skip að veiðum og 20 níu árum síðar. Ekki skal fullyrt að uppgefnar aflatölur séu hár nákvæmar og líklega eru þær frekar í lægri kantinum. Til dæmis vekur það grunsemdir að fljótlega fóru skipseigendur að gefa upp aflatölur sem stóðu á heilum og hálfum tug. Engu að síður er óhætt að gera ráð fyrir því að töflur 1 og 2 sýni nokkurn veginn fjölda báta sem róið var eftir hákarli og gefi viðunandi hugmynd um aflann. Ekki er vit í því að reikna meðaltöl vegna þess að ekki var alltaf róið. Bændur í því sem hér er kallað Suður sveitir, sem eru Bæjar hreppur, Fellshreppur, Kirkjubóls hreppur og Hróf bergs hreppur, reru ekki árin 1835, 1836 og 1843 (þrjú ár). Úr Kald rana nes hreppi fóru engir til hákarlaveiða árin 1827, 1835, 1836, 1837, 1843 og 1844 (sex ár) og engir úr Árnes hreppi 1827, 1834, 1835, 1836 og 1837 (fimm ár). Tafla 1 sýnir því samanlagðan fjölda báta. Neðsta línan sýnir meðaltal ára sem eitthvað veiddist. Byggt er á upp- boðsbókum en fyllt í fáeinar eyður þar með skýrsl um sýslu manns til amtmanns. Borið er sam an við dómabók. Þar eru færsl ur ekki alltaf nákvæmar og má nefna að það eitt kemur fram árið 1832 að teknar voru skýrslur um hospitalshluti.34 Tafla 2 sýnir fjölda uppgefinna hákarls ígilda eftir sömu heimildum, með sam- lagningu næstneðst og meðalafla í lokin.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.