Fréttablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 18
FKA er
fjölbreytt-
ur sívax-
andi hópur
1.350
félags-
kvenna í
grósku-
miklu
félags-
starfi.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Sigríður Hrund Pétursdóttir
er formaður FKA. Hún segir
að FKA hvetji konur til að
mæta á viðburði félagsins.
Þetta sé öflugur hópur sem
hefur það einbeitta yfirlýsta
markmið að efla, styrkja og
hvetja konur í atvinnulífinu.
„Það er hægt að fjárfesta á marga
vegu. Geyma fé í banka, á markaði,
í fasteignum, í málverkum, gulli,
verðmætum hlutum, í rafmyntum,
undir koddanum – eða í sjálfri sér.
Tíminn er peningar hefur heyrst
og því mikilvægt að hafa í huga
þegar festa á fé í konum að það
þarf rými til. Hvað er það fyrsta
sem þarf að hafa í huga þegar fjár-
festingu í sjálfri sér skal fremja?“
spyr Sigríður.
„Hvar skal byrja? Það liggur ekki
alltaf fyrir. Hvert stefnir þú? Óljóst.
Hver er tilgangur þinn? Hvað
ertu eiginlega að meina? Konum
er einkar lagið að taka að sér
fjölda hlutverka og tæma þannig
mikilvægustu auðlind okkar allra,
tímann. Stutt í að kroppa í næstu
verðmæti, heilsuna. Með auknu
sjálfræði í vinnuhegðun skiptir
máli sjálfsþekking. Það er ákveð-
inn lykill að heilbrigðu atvinnulífi
og að sjálfsögðu grunnur að eigin
lífsgæðum.
Fjölbreyttur hópur kvenna
Yfirskrift opnunarviðburðar
starfsárs FKA 2022-23 var „Fjár-
festu í þér til framtíðar“. Konur
voru hvattar til að setja sig á dag-
skrá, hjá sjálfum sér, búa til rými
og finna og sinna eigin fjárfestingu
í gegnum FKA. Það þýðir að kona
þurfti að ákveða að taka að sér nýtt
ólaunað hlutverk, aðra vakt – sjálfa
sig.
Hvað mætir konu þegar hún
gengur í FKA? Fjölbreyttur
sívaxandi hópur 1.350 félags-
kvenna í gróskumiklu félagsstarfi.
Framúrskarandi leiðtogakonur,
atvinnurekendur og launþegar úr
flestöllum starfsgreinum landsins,
kraftmikil framtíðarmön, lands-
byggðadeildir landshorna á milli,
öll póstnúmer höfuðborgarsvæðis-
ins, konur af erlendum uppruna
frá nálægt fjörutíu mismunandi
löndum, breytt aldursbil – félags-
konur spanna sex áratugi, bros
og björt augu, því konur standa
í opinni skeifu til að taka á móti
henni en ekki lokuðum hring sem
snýr við henni baki, hugmynda-
auðgi, nýsköpun, fræðsluerindi,
viðskiptatækifæri, ómetanlegt
tengslanet, spriklandi hreyfigleði
og súrefnisát, sem birtist meðal
annars í golfi, gönguferðum, sjó-
sundi, hlaupahópi, fjallageitum,
– Raun & raf-viðburðir, ólínuleg
dagskrá sem auðveldar félags-
konum aðgengi umtalsvert.
Að vera með og tilheyra, sama
hvar við erum staddar og hvenær.
Að framkvæma marga hluti á sama
tíma er sértæk lúmsk hæfni sem
er ekki alltaf jákvæð. FKA kennir
okkur fljótt að forgangsraða, því
gróska í viðburðum félagsins er
slík að félagskonur langar til að
mæta og við byrjum að Tetrisa
vaktir hversdagsins til að koma
fjárfestingunni okkar að. FKA
hvetur konur til að mæta á við-
burði félagsins, vera virkar, fara
út fyrir þægindahringinn, efla og
æfa tengslanetið, stunda sýni-
leikann og vera annað hvort sitt
eigið hreyfiafl eða hluti af okkur
sem hóp – öflugum hóp sem hefur
það einbeitta yfirlýsta markmið
að efla, styrkja og hvetja konur í
atvinnulífinu.
Allar einstakar
Það er hluti af fjárfestingunni að
mæta. Við lærum mest og best
með því að framkvæma sjálfar og/
eða sjá og heyra vegferðir ann-
arra. Sögur okkar skipta svo miklu
máli. Þar endurspeglast reynslan,
áföllin, velgengnin, viðkvæmnin,
höfnunin, bugunin, styrkurinn,
úrvinnslan, gleðin, vonin, upp-
risan. Við erum allar: einstakar,
dýrmætar og fágætar. Félagskonur
tilheyra, fá rými og sjást. Hér þarf
engin að þykjast – það er aðeins eitt
stykki „ég“ – allar aðrar konur eru
uppteknar.
Það er aftur á móti ekki nóg að
mæta. Ekki frekar en í öðrum breyt-
ingum næst árangur með hugsun
og ákvörðun einni. Það er eins og að
mæta í bankann, standa hjá gjald-
keraborðinu og bíða. Fjármagnið
ávaxtast takmarkað í veskinu
þar. Það þarf að framkvæma til að
ávöxtun hefjist. Þá réttir FKA fram
veiðistöng. Sú fær sem frýjar. FKA
kennir félagskonum hvort tveggja.
Að læra með því að gera, á þínum
eigin forsendum. Uppskeran er
í samræmi við iðkun. Síðan eru
það konur sem vita nákvæmlega
hvernig þær vilja hafa hlutina, hvað
þær vilja gefa félaginu af sínum
tíma og rými. Stundum minna en
meira, en vilja þó tilheyra þessu
einstaka samfélagi. Þannig er FKA
lífið. Á okkar eigin forsendum – allt
eins og það á að vera.
Samstaða kvenna
Að fjárfesta í konum – með raun-
verulegu fjármagni, ekki aðeins
með valdeflingu – hefur marg-
feldisáhrif á samfélagið. Konur eru
helmingur íbúa, atvinnulífs, handa
og heilabúa á flestum stöðum.
Samstaða með konum er hraðall
á sjálfbærnivegferðinni. Það er
Fjárfestum í konum Sigríður Hrund
Pétursdóttir,
formaður FKA,
hvetur konur
til að ganga í
félagið og taka
þátt í starfinu
sem skapi gott
tengslanet.
MYND/
ÁSTA KRISTJÁNS
engin sjálfbærni án kvenna. Það er
því ágætt að rýna í hvar við veljum
að ávaxta fé okkar. Fjárfestum
í konum, í nýsköpun kvenna,
störfum þeirra og framgangi í sam-
félaginu, fyrirtækjum, stofnunum
og þjónustu – því að baki flestra
kvenna eru fjölskyldur og ótal til-
heyrandi hlutverk.
Veiðistöng fyrir raunverulegar
fjárfestingar í konum:
n Peningar tala. Verslaðu við kon-
ur sem reka eigin fyrirtæki, ekki
síst einyrkja.
n Styddu konur til sköpunar, við
þurfum hvatningu alveg frá
fyrstu skrefum og jafnvel fyrr.
Að fá byr undir vængi eflir hug-
rekki, kjark og þor.
n Fjárfestu sem engill, í hóp-
fjármögnun, vísissjóðum sem
styðja konur – æfðu þig hrein-
lega í að ávaxta þitt eigið fé og
komdu því í hendur kvenna.
n Talaðu konur upp og áfram
– ávallt. Ófrávíkjanlega. Við
þurfum ekki að vera sammála til
að vera samhuga.
Heilbrigt atvinnulíf er hvetjandi,
með góð samskipti, virðir tímann
og heilsu sem verðmæti, greiðir
götu fólks, þolir og þráir mistökin
því þar leynist lærdómurinn og er
sjálfleiðréttandi því við finnum í
hjörtum okkar hvað virkar vel –
okkur líður svo vel.
Um leið og ég óska félagskonum
og landsmönnum öllum innilega
til hamingju með daginn beini ég
athygli að þeim konum sem við
heiðrum á FKA viðurkenninga-
hátíð í dag. Þær fjárfestu í sér og
sinni vegferð og eru að uppskera.
Við samgleðjumst og þökkum fyrir
lærdóminn sem þær færa okkur.
Fjárfestum í konum, sýnum
samstöðu og iðkum jafnrétti, fjöl-
breytni og inngildingu samfélag-
inu til gæfu og giftusemi. Þá fyrst
brýst út gróska sem vellandi heitur
hver … og okkur líður svo vel,“ segir
Sigríður Hrund. n
Félagsstörf eru án staðsetninga
og þétt tengslanet FKA skapar
tækifæri í öllum landsbyggðum.
Landsbyggðardeildir FKA eru
fjórar þ.e. FKA Norðurlandi,
Suðurlandi, Vesturlandi og FKA
á Suðurnesjum. Þar eru haldnar
stórglæsilegar Landsbyggðaráð-
stefnur sem eru opnar almenningi
og næst verðum við á Suðurnesj-
um, nýjustu deild FKA sem nær
yfir stórt svæði þ.e. Reykjanesbæ,
Grindarvík, Suðurnesjabæ og
sveitarfélagið Voga og sameinar
konur með áherslu á nýsköpun
og eflingu atvinnutækifæra. FKA
Norðurland bauð heim síðast og
á tímum heimsfaraldurs vorum
við í streymi frá Háskólanum á
Bifröst. Fida Abu Libdeh formaður
og varaformaðurinn FKA Suður-
nesjum, Þuríður Aradóttir Braun,
telja nú í haustið 2023 með sínum
konum þegar FKA Suðurnes
býður heim næst. n
Landsbyggðaráðstefna FKA næst á Suðurnesjum
Stjórn FKA á Suðurnesjum. MYND/AÐSEND
Sýnileikadagur FKA verður
haldinn fimmtudaginn 2. mars
næstkomandi. Þátttökumet er
nokkuð sem FKA kann að slá eins
og dæmin sýna og slegið var þátt-
tökumet á síðast Sýnileikadegi. Við
gerum ráð fyrir frábærum degi í ár
þegar félagskonur fylla á verkfæra-
beltið í Arion. Sýnileikanefndina
skipa í stafrófsröð: Elinóra Inga
Sigurðardóttir, Erna Evudóttir,
Helga Björg Steinþórsdóttir og
stjórnarkonur FKA þær Dóra
Eyland, Katrín Kristjana Hjartar-
dóttir og Sigrún Jenný Barða-
dóttir eiga einnig sæti í nefndinni.
Hlökkum til að eiga með ykkur
frábæran dag! n
Sýnileikadagur
FKA 2023
Félagskonur FKA á Sýnileikadegi: Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands
Íslands, Helga Möller, Danielle Neben og Silla Páls ljósmyndari. MYND/AÐSEND
2 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu