Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 18
 FKA er fjölbreytt- ur sívax- andi hópur 1.350 félags- kvenna í grósku- miklu félags- starfi. Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Sigríður Hrund Pétursdóttir er formaður FKA. Hún segir að FKA hvetji konur til að mæta á viðburði félagsins. Þetta sé öflugur hópur sem hefur það einbeitta yfirlýsta markmið að efla, styrkja og hvetja konur í atvinnulífinu. „Það er hægt að fjárfesta á marga vegu. Geyma fé í banka, á markaði, í fasteignum, í málverkum, gulli, verðmætum hlutum, í rafmyntum, undir koddanum – eða í sjálfri sér. Tíminn er peningar hefur heyrst og því mikilvægt að hafa í huga þegar festa á fé í konum að það þarf rými til. Hvað er það fyrsta sem þarf að hafa í huga þegar fjár- festingu í sjálfri sér skal fremja?“ spyr Sigríður. „Hvar skal byrja? Það liggur ekki alltaf fyrir. Hvert stefnir þú? Óljóst. Hver er tilgangur þinn? Hvað ertu eiginlega að meina? Konum er einkar lagið að taka að sér fjölda hlutverka og tæma þannig mikilvægustu auðlind okkar allra, tímann. Stutt í að kroppa í næstu verðmæti, heilsuna. Með auknu sjálfræði í vinnuhegðun skiptir máli sjálfsþekking. Það er ákveð- inn lykill að heilbrigðu atvinnulífi og að sjálfsögðu grunnur að eigin lífsgæðum. Fjölbreyttur hópur kvenna Yfirskrift opnunarviðburðar starfsárs FKA 2022-23 var „Fjár- festu í þér til framtíðar“. Konur voru hvattar til að setja sig á dag- skrá, hjá sjálfum sér, búa til rými og finna og sinna eigin fjárfestingu í gegnum FKA. Það þýðir að kona þurfti að ákveða að taka að sér nýtt ólaunað hlutverk, aðra vakt – sjálfa sig. Hvað mætir konu þegar hún gengur í FKA? Fjölbreyttur sívaxandi hópur 1.350 félags- kvenna í gróskumiklu félagsstarfi. Framúrskarandi leiðtogakonur, atvinnurekendur og launþegar úr flestöllum starfsgreinum landsins, kraftmikil framtíðarmön, lands- byggðadeildir landshorna á milli, öll póstnúmer höfuðborgarsvæðis- ins, konur af erlendum uppruna frá nálægt fjörutíu mismunandi löndum, breytt aldursbil – félags- konur spanna sex áratugi, bros og björt augu, því konur standa í opinni skeifu til að taka á móti henni en ekki lokuðum hring sem snýr við henni baki, hugmynda- auðgi, nýsköpun, fræðsluerindi, viðskiptatækifæri, ómetanlegt tengslanet, spriklandi hreyfigleði og súrefnisát, sem birtist meðal annars í golfi, gönguferðum, sjó- sundi, hlaupahópi, fjallageitum, – Raun & raf-viðburðir, ólínuleg dagskrá sem auðveldar félags- konum aðgengi umtalsvert. Að vera með og tilheyra, sama hvar við erum staddar og hvenær. Að framkvæma marga hluti á sama tíma er sértæk lúmsk hæfni sem er ekki alltaf jákvæð. FKA kennir okkur fljótt að forgangsraða, því gróska í viðburðum félagsins er slík að félagskonur langar til að mæta og við byrjum að Tetrisa vaktir hversdagsins til að koma fjárfestingunni okkar að. FKA hvetur konur til að mæta á við- burði félagsins, vera virkar, fara út fyrir þægindahringinn, efla og æfa tengslanetið, stunda sýni- leikann og vera annað hvort sitt eigið hreyfiafl eða hluti af okkur sem hóp – öflugum hóp sem hefur það einbeitta yfirlýsta markmið að efla, styrkja og hvetja konur í atvinnulífinu. Allar einstakar Það er hluti af fjárfestingunni að mæta. Við lærum mest og best með því að framkvæma sjálfar og/ eða sjá og heyra vegferðir ann- arra. Sögur okkar skipta svo miklu máli. Þar endurspeglast reynslan, áföllin, velgengnin, viðkvæmnin, höfnunin, bugunin, styrkurinn, úrvinnslan, gleðin, vonin, upp- risan. Við erum allar: einstakar, dýrmætar og fágætar. Félagskonur tilheyra, fá rými og sjást. Hér þarf engin að þykjast – það er aðeins eitt stykki „ég“ – allar aðrar konur eru uppteknar. Það er aftur á móti ekki nóg að mæta. Ekki frekar en í öðrum breyt- ingum næst árangur með hugsun og ákvörðun einni. Það er eins og að mæta í bankann, standa hjá gjald- keraborðinu og bíða. Fjármagnið ávaxtast takmarkað í veskinu þar. Það þarf að framkvæma til að ávöxtun hefjist. Þá réttir FKA fram veiðistöng. Sú fær sem frýjar. FKA kennir félagskonum hvort tveggja. Að læra með því að gera, á þínum eigin forsendum. Uppskeran er í samræmi við iðkun. Síðan eru það konur sem vita nákvæmlega hvernig þær vilja hafa hlutina, hvað þær vilja gefa félaginu af sínum tíma og rými. Stundum minna en meira, en vilja þó tilheyra þessu einstaka samfélagi. Þannig er FKA lífið. Á okkar eigin forsendum – allt eins og það á að vera. Samstaða kvenna Að fjárfesta í konum – með raun- verulegu fjármagni, ekki aðeins með valdeflingu – hefur marg- feldisáhrif á samfélagið. Konur eru helmingur íbúa, atvinnulífs, handa og heilabúa á flestum stöðum. Samstaða með konum er hraðall á sjálfbærnivegferðinni. Það er Fjárfestum í konum Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður FKA, hvetur konur til að ganga í félagið og taka þátt í starfinu sem skapi gott tengslanet. MYND/ ÁSTA KRISTJÁNS engin sjálfbærni án kvenna. Það er því ágætt að rýna í hvar við veljum að ávaxta fé okkar. Fjárfestum í konum, í nýsköpun kvenna, störfum þeirra og framgangi í sam- félaginu, fyrirtækjum, stofnunum og þjónustu – því að baki flestra kvenna eru fjölskyldur og ótal til- heyrandi hlutverk. Veiðistöng fyrir raunverulegar fjárfestingar í konum: n Peningar tala. Verslaðu við kon- ur sem reka eigin fyrirtæki, ekki síst einyrkja. n Styddu konur til sköpunar, við þurfum hvatningu alveg frá fyrstu skrefum og jafnvel fyrr. Að fá byr undir vængi eflir hug- rekki, kjark og þor. n Fjárfestu sem engill, í hóp- fjármögnun, vísissjóðum sem styðja konur – æfðu þig hrein- lega í að ávaxta þitt eigið fé og komdu því í hendur kvenna. n Talaðu konur upp og áfram – ávallt. Ófrávíkjanlega. Við þurfum ekki að vera sammála til að vera samhuga. Heilbrigt atvinnulíf er hvetjandi, með góð samskipti, virðir tímann og heilsu sem verðmæti, greiðir götu fólks, þolir og þráir mistökin því þar leynist lærdómurinn og er sjálfleiðréttandi því við finnum í hjörtum okkar hvað virkar vel – okkur líður svo vel. Um leið og ég óska félagskonum og landsmönnum öllum innilega til hamingju með daginn beini ég athygli að þeim konum sem við heiðrum á FKA viðurkenninga- hátíð í dag. Þær fjárfestu í sér og sinni vegferð og eru að uppskera. Við samgleðjumst og þökkum fyrir lærdóminn sem þær færa okkur. Fjárfestum í konum, sýnum samstöðu og iðkum jafnrétti, fjöl- breytni og inngildingu samfélag- inu til gæfu og giftusemi. Þá fyrst brýst út gróska sem vellandi heitur hver … og okkur líður svo vel,“ segir Sigríður Hrund. n Félagsstörf eru án staðsetninga og þétt tengslanet FKA skapar tækifæri í öllum landsbyggðum. Landsbyggðardeildir FKA eru fjórar þ.e. FKA Norðurlandi, Suðurlandi, Vesturlandi og FKA á Suðurnesjum. Þar eru haldnar stórglæsilegar Landsbyggðaráð- stefnur sem eru opnar almenningi og næst verðum við á Suðurnesj- um, nýjustu deild FKA sem nær yfir stórt svæði þ.e. Reykjanesbæ, Grindarvík, Suðurnesjabæ og sveitarfélagið Voga og sameinar konur með áherslu á nýsköpun og eflingu atvinnutækifæra. FKA Norðurland bauð heim síðast og á tímum heimsfaraldurs vorum við í streymi frá Háskólanum á Bifröst. Fida Abu Libdeh formaður og varaformaðurinn FKA Suður- nesjum, Þuríður Aradóttir Braun, telja nú í haustið 2023 með sínum konum þegar FKA Suðurnes býður heim næst. n Landsbyggðaráðstefna FKA næst á Suðurnesjum Stjórn FKA á Suðurnesjum. MYND/AÐSEND Sýnileikadagur FKA verður haldinn fimmtudaginn 2. mars næstkomandi. Þátttökumet er nokkuð sem FKA kann að slá eins og dæmin sýna og slegið var þátt- tökumet á síðast Sýnileikadegi. Við gerum ráð fyrir frábærum degi í ár þegar félagskonur fylla á verkfæra- beltið í Arion. Sýnileikanefndina skipa í stafrófsröð: Elinóra Inga Sigurðardóttir, Erna Evudóttir, Helga Björg Steinþórsdóttir og stjórnarkonur FKA þær Dóra Eyland, Katrín Kristjana Hjartar- dóttir og Sigrún Jenný Barða- dóttir eiga einnig sæti í nefndinni. Hlökkum til að eiga með ykkur frábæran dag! n Sýnileikadagur FKA 2023 Félagskonur FKA á Sýnileikadegi: Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, Helga Möller, Danielle Neben og Silla Páls ljósmyndari. MYND/AÐSEND 2 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.