Fréttablaðið - 26.01.2023, Síða 52

Fréttablaðið - 26.01.2023, Síða 52
Guðrún Tinna Ólafsdóttir er með meistaragráðu í fjármálum með áherslu á stefnumótun frá HÍ. Jafn- framt tók hún diplómanám frá Listaháskóla Íslands og Háskólanum á Bifröst með áherslu á fræðigreinar lista og heimspeki. Guðrún Tinna hóf störf hjá Húsa- smiðjunni fyrir rúmum tveimur árum sem framkvæmdastjóri verslanasviðs. Samhliða því starfi situr hún í stjórn Regins fasteignafélags og er stjórnarfor- maður Svanna, lánatryggingasjóðs kvenna. „Ég gæti ekki verið heppnari með störf þar sem mér finnst fátt jafn gefandi og að finna leið til að uppfylla þarfir viðskiptavina á sama tíma og hlúð er að starfsfólki, takast á við ólíkar áskoranir innan aðfangakeðjunnar og tryggja arð- semismarkmið eigenda í sátt við samfélagið,“ segir Tinna. „Í dag er mikil krafa um traust, mann- auðsmál, upplýsingagjöf, stafræna þjónustu, gagnvirkt markaðsstarf og samfélags- og umhverfismál. Þetta eru allt spennandi verkefni sem ég fæ að sinna með sterku teymi samstarfsmanna um land allt.“ Reksturinn og mannauðsmál Hjá Húsasmiðjunni, Blómavali og Ískraft starfa rúmlega 500 manns með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu í 14 verslun- um Húsasmiðjunnar um land allt og sjö Blómavalsverslunum, auk fjögurra útibúa frá Ískraft. Rekstur fyrirtækisins gekk mjög vel á síðasta ári og jókst veltan umtals- vert á milli ára. Að sögn Tinnu var einkaneyslan góð á sama tíma og gríðarlega mikill kraftur var hjá verktökum og í opinberum framkvæmdum. „Við erum með ólíkan hóp viðskiptavina, allt frá einstaklingum sem kaupa til dæmis blóm, heimilistæki, fá lita- ráðgjöf fyrir heimilið og timbur fyrir pallinn sinn, yfir í stærstu byggingarverktaka landsins þar sem þjónusta og tilboðsgerð í stál, plötur og timbur skipar stóran sess. Þetta krefst mikillar breiddar í vöruúrvali og þjónustu, þótt í grunninn sé ávallt sama leiðar- ljósið – að eiga í góðu sambandi við viðskiptavininn. Tinna segir mannauðsmál vera lykilatriði í rekstri góðs fyrirtækis og að öflugur starfsmannahópur hafi gert Húsasmiðjunni kleift að halda uppi frábæru þjónustustigi við viðskiptavini fyrirtækisins síðustu tvö árin þannig að ánægja viðskiptavina jókst milli ára þrátt fyrir afar krefjandi aðstæður í aðfangakeðjunni vegna Covid, bæði varðandi vöruframboð, verð- hækkanir og flutning til landsins. „Það sem er ekki síður ánægjulegt er að starfsánægja jókst líka milli ára hjá okkur, þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður, sem sýnir okkur hversu öflugur starfsmannahópur- inn er, enda er hann hryggjar- stykkið í fyrirtækinu. Einn liður í ánægju starfsmanna er öflugur Húsasmiðjuskóli sem hefur verið starfræktur frá 1998 og býður upp á yfir 300 námskeið á ári.“ Að sögn Tinnu er mikil áhersla lögð á jafnrétti innan fyrir- tækisins. „Þar sem oft hefur verið rætt um að byggingargeirinn sé karllægur geiri þá get ég sagt með stolti að innan til dæmis Verslana- sviðs Húsasmiðjunnar eru fjórar konur stjórnendur rekstrareininga af 14 verslunum, öflug kona er rekstrarstjóri þungavöruhúss Húsasmiðjunnar og tvær konur eru í framkvæmdastjórn fyrir- tækisins. Í heildina eru konur um 30 prósent starfsmanna. Það er mjög erfitt að finna sambærilegt hlutfall í okkar nágrannalöndum. Jafnframt vorum við fyrsta fyrir- tækið á byggingarvörumarkaði sem fékk jafnlaunavottun, í upp- hafi árs 2019.“ Umhverfis- og samfélagsmál Mikil áhersla er lögð á sjálfbærni og umhverfismál, að sögn Tinnu, bæði inn á við í öllum rekstri Húsasmiðjunnar en ekki síður í vöruframboði og þjónustu við viðskiptavini. „Við erum mjög meðvituð um þá ábyrgð sem hvílir á okkur við val á því vöruframboði sem Íslendingum gefst kostur á að velja úr hér á landi, til bygginga og til heimilis, í samspili við náttúru okkar og jörð.“ Hjá Húsasmiðjunni starfar öflugur sérfræðingur í umhverfis- málum sem ávallt er hægt að leita til. Lykilmarkmið sjálfbærnistefnu Húsasmiðjunnar að vera fyrsti valkostur fyrir grænar byggingar- vörur og byggingar á Íslandi, og Tinna segir markvisst unnið að því alla daga, bæði innan starf- seminnar með til dæmis bestun ferla og lágmörkun úrgangs, auk þess sem stöðugt sé unnið að auknu vöruframboði grænna og vistvænna vara. „Breeam og Svansvottun eru mest notuðu umhverfisvottanir fyrir byggingar eða byggingarferla á Íslandi. Við veitum viðskiptavin- um okkar ráðgjöf varðandi þessar vottanir og á heimasíðu okkar er hægt að finna yfir fjögur þúsund vottaðar vörur undir „Grænar vörur“. Má til dæmis nefna að meirihluti þeirra málningar sem við seljum er Svansvottuð. Á örfáum árum eru almennir við- skiptavinir orðnir mun upplýstari um þessi mál en áður. Ég er ótrú- lega stolt af því að Húsasmiðjan sjálf hóf þessa vegferð upp úr árinu 2007 þegar fyrirtækið fór að kaupa timbur úr sjálfbærum skógum, sem er einn stærsti vöruflokkur- inn okkar, og er langstærsti hluti þess timburs sem við seljum í dag frá vottuðum skógum. Jafnframt má segja að meirihluti seldra vara okkar í dag til stærstu viðskipta- vinanna, það er verktakanna, séu grænar vörur, vottaðar eða leyfi- legar í vottuð verkefni.“ Þróun verslunar Viðskiptavinir standa frammi fyrir gríðarlegum möguleikum í dag við val á fyrirtækjum til að eiga viðskiptasamband við og hvernig viðskiptasambandinu er háttað. Tinna segir landamæri milli hefðbundinna verslana og hins stafræna heims hverfa hratt. „Við sjáum skýrt að viðskiptavinir vilja eiga samskipti við okkur í gegnum ólíka miðla á sama tíma og þeir vilja upplifa sömu þjónustu, vöru- framboð og afgreiðsluleiðir, óháð því hvar og hvernig viðskiptin eiga sér stað. Við í Húsasmiðjunni höfum staðið mjög framarlega í stafrænni vegferð síðustu miss- erin. Flestir okkar ferlar eru orðnir stafrænir að fullu eða hluta, sem skiptir lykilmáli fyrir skilvirkni og afköst. Jafnframt kynntum við í fyrra Húsasmiðjuappið sem er bæði sjálfsafgreiðsluapp og þjón- ustuapp. Þar getur viðskiptavinur okkar til að mynda fengið greiðslu- dreifingu, stýrt lánsheimildum þar sem umsóknarferlið er að fullu rafrænt og notað sín afsláttar- og viðskiptakjör.“ Samhliða stafrænni vegferð uppfærir Húsasmiðjan verslanir sínar. Á síðasta ári var opnuð ný og glæsileg 5.000 fermetra verslun á Akureyri og í lok þessa árs verður opnuð sambærileg ný verslun á Selfossi. „Við höfum vandað sér- lega vel til verka og búðirnar eru hannaðar út frá þörfum viðskipta- vina. Báðar þessar verslanir hafa öflugri málningardeild, vegleg sýningarrými fyrir til dæmis heimilistæki, gólfefni og hrein- lætistæki, stærri Blómavalsverslun, auk þess sem timbursalan er orðin enn stærri og með „drive-through“. Verslanirnar eru byggðar með umhverfis staðla í huga, eins og LED-lýsingu og hússtýringakerfi til að lágmarka orkunotkun. Jafnframt erum við með hleðslu- stöðvar fyrir bæði viðskiptavini og starfsmenn, en við hófum þá vegferð í fyrra að setja upp hleðslu- stöðvar við verslanir okkar um land allt. Í vor munum við svo taka í gegn stærstu Blómavalsverslun okkar í Skútuvogi sem allflestir Íslendingar á höfuðborgarsvæðinu þekkja mjög vel,“ segir Tinna. Félag fagkvenna Tinna segist ekki geta látið hjá liða að nefna frábært samstarfs- verkefni milli Húsasmiðjunnar og Félags fagkvenna sem hófst á síðasta ári. „Þar sem við erum einn stærsti byggingarvörusöluaðili hér á landi, og eigum í samstarfi við meirihluta iðnaðarmanna á Íslandi, berum við líka ábyrgð á því að auka hlut kvenna sem stunda iðnnám og vinna við iðn- greinar. Við erum í dag bakhjarl félagsins og fórum því í öfluga herferð með Félagi fagkvenna með það að markmiði að efla vitundarvakningu um konur í iðngreinum. Og vá, hvað þetta er öflugur og flottur hópur af konum! Og þeim hefur farið ört fjölgandi á síðustu þremur árum í greinum á borð við pípulagnir, húsasmíði, rafvirkjun og svo framvegis. Það er gríðarlega mikilvægt að konur eigi sér fyrirmyndir í greininni. Við í Húsasmiðjunni erum að hjálpa til við að gera þessar fyrirmyndir enn sýnilegri,“ segir Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri verslanasviðs Húsasmiðjunnar. n Landamæri milli verslana og stafræns heims hverfa hratt Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri verslanasviðs Húsasmiðjunnar, segir mikla áherslu lagða á jafnrétti innan fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Flestir okkar ferlar eru orðnir staf- rænir að fullu eða hluta, sem skiptir lykilmáli fyrir skilvirkni og afköst. 36 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFéLag kvenna í atvinnuLíFinu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.