Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 52
Guðrún Tinna Ólafsdóttir
er með meistaragráðu í
fjármálum með áherslu á
stefnumótun frá HÍ. Jafn-
framt tók hún diplómanám
frá Listaháskóla Íslands og
Háskólanum á Bifröst með
áherslu á fræðigreinar lista
og heimspeki.
Guðrún Tinna hóf störf hjá Húsa-
smiðjunni fyrir rúmum tveimur
árum sem framkvæmdastjóri
verslanasviðs. Samhliða því
starfi situr hún í stjórn Regins
fasteignafélags og er stjórnarfor-
maður Svanna, lánatryggingasjóðs
kvenna.
„Ég gæti ekki verið heppnari
með störf þar sem mér finnst fátt
jafn gefandi og að finna leið til að
uppfylla þarfir viðskiptavina á
sama tíma og hlúð er að starfsfólki,
takast á við ólíkar áskoranir innan
aðfangakeðjunnar og tryggja arð-
semismarkmið eigenda í sátt við
samfélagið,“ segir Tinna. „Í dag
er mikil krafa um traust, mann-
auðsmál, upplýsingagjöf, stafræna
þjónustu, gagnvirkt markaðsstarf
og samfélags- og umhverfismál.
Þetta eru allt spennandi verkefni
sem ég fæ að sinna með sterku
teymi samstarfsmanna um land
allt.“
Reksturinn og mannauðsmál
Hjá Húsasmiðjunni, Blómavali og
Ískraft starfa rúmlega 500 manns
með fjölbreyttan bakgrunn,
reynslu og þekkingu í 14 verslun-
um Húsasmiðjunnar um land allt
og sjö Blómavalsverslunum, auk
fjögurra útibúa frá Ískraft. Rekstur
fyrirtækisins gekk mjög vel á
síðasta ári og jókst veltan umtals-
vert á milli ára. Að sögn Tinnu var
einkaneyslan góð á sama tíma
og gríðarlega mikill kraftur var
hjá verktökum og í opinberum
framkvæmdum. „Við erum með
ólíkan hóp viðskiptavina, allt
frá einstaklingum sem kaupa til
dæmis blóm, heimilistæki, fá lita-
ráðgjöf fyrir heimilið og timbur
fyrir pallinn sinn, yfir í stærstu
byggingarverktaka landsins þar
sem þjónusta og tilboðsgerð í stál,
plötur og timbur skipar stóran
sess. Þetta krefst mikillar breiddar
í vöruúrvali og þjónustu, þótt í
grunninn sé ávallt sama leiðar-
ljósið – að eiga í góðu sambandi við
viðskiptavininn.
Tinna segir mannauðsmál vera
lykilatriði í rekstri góðs fyrirtækis
og að öflugur starfsmannahópur
hafi gert Húsasmiðjunni kleift að
halda uppi frábæru þjónustustigi
við viðskiptavini fyrirtækisins
síðustu tvö árin þannig að ánægja
viðskiptavina jókst milli ára þrátt
fyrir afar krefjandi aðstæður í
aðfangakeðjunni vegna Covid,
bæði varðandi vöruframboð, verð-
hækkanir og flutning til landsins.
„Það sem er ekki síður ánægjulegt
er að starfsánægja jókst líka milli
ára hjá okkur, þrátt fyrir erfiðar
ytri aðstæður, sem sýnir okkur
hversu öflugur starfsmannahópur-
inn er, enda er hann hryggjar-
stykkið í fyrirtækinu. Einn liður
í ánægju starfsmanna er öflugur
Húsasmiðjuskóli sem hefur verið
starfræktur frá 1998 og býður upp
á yfir 300 námskeið á ári.“
Að sögn Tinnu er mikil áhersla
lögð á jafnrétti innan fyrir-
tækisins. „Þar sem oft hefur verið
rætt um að byggingargeirinn sé
karllægur geiri þá get ég sagt með
stolti að innan til dæmis Verslana-
sviðs Húsasmiðjunnar eru fjórar
konur stjórnendur rekstrareininga
af 14 verslunum, öflug kona er
rekstrarstjóri þungavöruhúss
Húsasmiðjunnar og tvær konur
eru í framkvæmdastjórn fyrir-
tækisins. Í heildina eru konur um
30 prósent starfsmanna. Það er
mjög erfitt að finna sambærilegt
hlutfall í okkar nágrannalöndum.
Jafnframt vorum við fyrsta fyrir-
tækið á byggingarvörumarkaði
sem fékk jafnlaunavottun, í upp-
hafi árs 2019.“
Umhverfis- og samfélagsmál
Mikil áhersla er lögð á sjálfbærni
og umhverfismál, að sögn Tinnu,
bæði inn á við í öllum rekstri
Húsasmiðjunnar en ekki síður
í vöruframboði og þjónustu við
viðskiptavini. „Við erum mjög
meðvituð um þá ábyrgð sem hvílir
á okkur við val á því vöruframboði
sem Íslendingum gefst kostur á að
velja úr hér á landi, til bygginga og
til heimilis, í samspili við náttúru
okkar og jörð.“
Hjá Húsasmiðjunni starfar
öflugur sérfræðingur í umhverfis-
málum sem ávallt er hægt að leita
til. Lykilmarkmið sjálfbærnistefnu
Húsasmiðjunnar að vera fyrsti
valkostur fyrir grænar byggingar-
vörur og byggingar á Íslandi, og
Tinna segir markvisst unnið að
því alla daga, bæði innan starf-
seminnar með til dæmis bestun
ferla og lágmörkun úrgangs, auk
þess sem stöðugt sé unnið að
auknu vöruframboði grænna og
vistvænna vara.
„Breeam og Svansvottun eru
mest notuðu umhverfisvottanir
fyrir byggingar eða byggingarferla
á Íslandi. Við veitum viðskiptavin-
um okkar ráðgjöf varðandi þessar
vottanir og á heimasíðu okkar er
hægt að finna yfir fjögur þúsund
vottaðar vörur undir „Grænar
vörur“. Má til dæmis nefna að
meirihluti þeirra málningar sem
við seljum er Svansvottuð. Á
örfáum árum eru almennir við-
skiptavinir orðnir mun upplýstari
um þessi mál en áður. Ég er ótrú-
lega stolt af því að Húsasmiðjan
sjálf hóf þessa vegferð upp úr árinu
2007 þegar fyrirtækið fór að kaupa
timbur úr sjálfbærum skógum,
sem er einn stærsti vöruflokkur-
inn okkar, og er langstærsti hluti
þess timburs sem við seljum í dag
frá vottuðum skógum. Jafnframt
má segja að meirihluti seldra vara
okkar í dag til stærstu viðskipta-
vinanna, það er verktakanna, séu
grænar vörur, vottaðar eða leyfi-
legar í vottuð verkefni.“
Þróun verslunar
Viðskiptavinir standa frammi fyrir
gríðarlegum möguleikum í dag
við val á fyrirtækjum til að eiga
viðskiptasamband við og hvernig
viðskiptasambandinu er háttað.
Tinna segir landamæri milli
hefðbundinna verslana og hins
stafræna heims hverfa hratt. „Við
sjáum skýrt að viðskiptavinir vilja
eiga samskipti við okkur í gegnum
ólíka miðla á sama tíma og þeir
vilja upplifa sömu þjónustu, vöru-
framboð og afgreiðsluleiðir, óháð
því hvar og hvernig viðskiptin
eiga sér stað. Við í Húsasmiðjunni
höfum staðið mjög framarlega í
stafrænni vegferð síðustu miss-
erin. Flestir okkar ferlar eru orðnir
stafrænir að fullu eða hluta, sem
skiptir lykilmáli fyrir skilvirkni
og afköst. Jafnframt kynntum við
í fyrra Húsasmiðjuappið sem er
bæði sjálfsafgreiðsluapp og þjón-
ustuapp. Þar getur viðskiptavinur
okkar til að mynda fengið greiðslu-
dreifingu, stýrt lánsheimildum
þar sem umsóknarferlið er að fullu
rafrænt og notað sín afsláttar- og
viðskiptakjör.“
Samhliða stafrænni vegferð
uppfærir Húsasmiðjan verslanir
sínar. Á síðasta ári var opnuð ný og
glæsileg 5.000 fermetra verslun á
Akureyri og í lok þessa árs verður
opnuð sambærileg ný verslun á
Selfossi. „Við höfum vandað sér-
lega vel til verka og búðirnar eru
hannaðar út frá þörfum viðskipta-
vina. Báðar þessar verslanir hafa
öflugri málningardeild, vegleg
sýningarrými fyrir til dæmis
heimilistæki, gólfefni og hrein-
lætistæki, stærri Blómavalsverslun,
auk þess sem timbursalan er orðin
enn stærri og með „drive-through“.
Verslanirnar eru byggðar með
umhverfis staðla í huga, eins og
LED-lýsingu og hússtýringakerfi
til að lágmarka orkunotkun.
Jafnframt erum við með hleðslu-
stöðvar fyrir bæði viðskiptavini
og starfsmenn, en við hófum þá
vegferð í fyrra að setja upp hleðslu-
stöðvar við verslanir okkar um
land allt. Í vor munum við svo taka
í gegn stærstu Blómavalsverslun
okkar í Skútuvogi sem allflestir
Íslendingar á höfuðborgarsvæðinu
þekkja mjög vel,“ segir Tinna.
Félag fagkvenna
Tinna segist ekki geta látið hjá
liða að nefna frábært samstarfs-
verkefni milli Húsasmiðjunnar
og Félags fagkvenna sem hófst á
síðasta ári. „Þar sem við erum einn
stærsti byggingarvörusöluaðili
hér á landi, og eigum í samstarfi
við meirihluta iðnaðarmanna á
Íslandi, berum við líka ábyrgð
á því að auka hlut kvenna sem
stunda iðnnám og vinna við iðn-
greinar. Við erum í dag bakhjarl
félagsins og fórum því í öfluga
herferð með Félagi fagkvenna
með það að markmiði að efla
vitundarvakningu um konur í
iðngreinum. Og vá, hvað þetta er
öflugur og flottur hópur af konum!
Og þeim hefur farið ört fjölgandi
á síðustu þremur árum í greinum
á borð við pípulagnir, húsasmíði,
rafvirkjun og svo framvegis. Það
er gríðarlega mikilvægt að konur
eigi sér fyrirmyndir í greininni. Við
í Húsasmiðjunni erum að hjálpa
til við að gera þessar fyrirmyndir
enn sýnilegri,“ segir Guðrún Tinna
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
verslanasviðs Húsasmiðjunnar. n
Landamæri milli verslana
og stafræns heims hverfa hratt
Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri verslanasviðs Húsasmiðjunnar, segir mikla áherslu lagða á jafnrétti innan fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Flestir okkar ferlar
eru orðnir staf-
rænir að fullu eða hluta,
sem skiptir lykilmáli
fyrir skilvirkni og afköst.
36 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFéLag kvenna í atvinnuLíFinu