Fréttablaðið - 26.01.2023, Side 62

Fréttablaðið - 26.01.2023, Side 62
Rósbjörg Jónsdóttir er við- skiptafræðingur að mennt með sérhæfingu á sviði samkeppnishæfni greininga, klasastjórnunar og sam- félagslegrar ábyrgðar. Rósbjörg hefur víðtæka og árang- ursríka starfsreynslu úr íslensku atvinnulífi. Til að mynda var hún framkvæmdastjóri Ráðstefnu- skrifstofu Íslands 2000–2005 og markaðsstjóri Hótel Holts 2005– 2010. Á árunum 2011–2016 starfaði Rósbjörg sem ráðgjafi hjá Gekon og á þeim tíma sérhæfði hún sig á sviði klasastjórnunar og gagnkvæms virðisauka (shared value). Rósbjörg kortlagði og mótaði Íslenska ferðaklasann (2012–2016), lagði grunninn að alþjóðlegum ráðstefnum sem hafa stutt og eflt íslenskt samfélag, þar á meðal Iceland Geothermal Conference 2013 og 2016 og What Works in Social Progress. Þá leiddi Rósbjörg umsókn Íslands um að fá til lands- ins WGC2020. „Ég hef stýrt mínu eigin ráð- gjafarfélagi, Cognitio, frá 2016. Cognitio hefur jafnframt haft veg og vanda af framsetningu Fram- faravogarinnar sem metur stöðu sveitarfélaga út frá félagslegum og umhverfislegum þáttum og segir til um hvernig staðan er á þeim svæðum sem skoðuð eru.“ Rósbjörg er fulltrúi SPI, Social Progress Imperative, á Íslandi, en SPI gefur árlega út vísitölu félags- legra framfara (social progress index) á heimsvísu. Hún sat í stjórn Festu 2016–2018 og situr í stjórn faghóps Stjórnvísi um samfélagsábyrgð og er stjórnar- maður í Kolviði. Rósbjörg tók við sem fram- kvæmdastjóri Orkuklasans vorið 2022. Að sögn Rósbjargar fagnar Orkuklasinn tíu ára starfsafmæli í ár. „Hann var formlega stofnaður 2013, fyrst sem jarðvarmaklasi en útvíkkaði fókusinn 2018–19 og horfir til jarðhita, vatnsafls, vinds og rafeldsneytis. Orkuklasinn hefur verið brautryðjandi á sviði orku- mála þar sem horft er til þverfaglegs samstarfs og haft mikil áhrif, ekki síst þegar horft til þess að byggja upp Ísland sem sýningarglugga Orkuklasinn þverfaglegur klasavettvangur atvinnulífs Starfsemi Orku- klasans hefur að sögn Rósbjargar sjaldan eða aldrei verið mikilvægari en nú, en klasinn fagnar 10 ára afmæli í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI fyrir endurnýjanlega orku.“ Orkuklasinn er þverfaglegur samstarfsvettvangur atvinnulífs, háskólaumhverfis, opinberra aðila, fjárfesta/fjármögnunaraðila og frumkvöðla, sem eiga hagsmuna að gæta varðandi framleiðslu, nýtingu og dreifingu orku og orkutengdrar starfsemi og nær til allrar virðis- keðjunnar. Að sögn Rósbjargar er leiðarljós vettvangsins að stuðla að aukinni samvinnu, þekkingarmiðlun og framþróun. Með margvíslegum uppákomum, viðburðum og fræðslu skapi Orkuklasinn félögum sínum aukin tækifæri til frekari verðmætasköpunar með beinum og óbeinum hætti. „Það er mikilvægt að huga að jafnvægi kynjanna,“ segir Rósbjörg. „Öflugar konur hafa verið að hasla sér völl á sviði orkutengdrar starf- semi og fögnum við því og hvetjum ungar konur til að skapa sér atvinnutækifæri innan greinar- innar því hér eru gríðarleg tækifæri sem eru án landamæra.“ Starfsemi Íslenska orkuklasans hefur að sögn Rósbjargar sjaldan ef nokkurn tímann verið jafn mikil- væg, enda klasasamstarf birtingar- mynd nýsköpunar og þróunar þar sem ávinningur heildarinnar sé hafður að leiðarljósi. „Klasasamstarf er talið ein áhrifaríkasta leiðin til að knýja áfram framþróun og aukna verð- mætasköpun samfélaga og því viljum við sem að þessum vettvangi stöndum leggja okkar af mörkum þegar við tökumst á við áskoranir framtíðarinnar,“ segir Rósbjörg Jónsdóttir hjá Orkuklasanum. n Tilgangur klasavettvangsins er: n Stuðla að aukinni ný- sköpun, stofnun sprota- fyrirtækja, rannsóknum og þróun n Styrkja ímynd Íslands sem lands endurnýjanlegrar orku n Stuðla að aukinni verð- mætasköpun, þekkingu og færni aðildarfélaga n Stuðla að þróun og út- flutningi sérhæfðrar vöru og þjónustu og verndun hugverka n Efla tengslanet og upplýs- ingaflæði milli orkugeirans, stjórnvalda og samfélagsins Margþættur ávinningur Framtíðarsýn: Orkutengd starfsemi er grunnur velferðar á Íslandi. Með ábyrgri stjórnun við- heldur og eflir greinin þau lífsgæði sem hér ríkja og tryggir efnahagslegar, sam- félagslegar og umhverfis- legar framfarir. Virðisauki Orkuklasans: Íslenski orkuklasinn gegnir lykilhlutverki í því að við- halda lífsgæðum og stuðlar að aukinni samkeppnishæfni félaga sinna með verkefna- drifnu samstarfi þar sem þekking, samvinna og fram- þróun eru höfð að leiðarljósi. Með því að draga félaga saman þvert á virðiskeðjuna og á atvinnugreinar er stuðlað að þekkingaryfir- færslu í báðar áttir þar sem tilgangurinn er að stuðla að aukinni framþróun. Fram- þróun innan félaga, atvinnu- greinar og samfélags. Lykilstarfsemi og markmið: Hlutverk Orkuklasans er að efla samvinnu þvert á félaga og greinar og hraða mikilvægum úrbótum og breytingum til aukinnar framþróunar í orkutengdri starfsemi. Miklar kröfur eru gerðar á greinina til að ná stórum og mikilvægum markmiðum á sviði loftslags- mála. En þar gegna orkumálin stóru hlutverki. Á sama tíma og áskoranir eru miklar, skapast alla vega tækifæri og mikilvægt að leggjast saman á árarnar þar sem þess er þörf. Með það að leiðarljósi leggur Orkuklasinn áherslu á þrjár víddir í sinni starfsemi á komandi misserum sem allar leiða til aukinnar samvinnu, þekkingar og framþróunar: n Nýsköpun og framþróun n Alþjóðasamskipti og sam- vinnu n Fræðslu og þjálfun Vel sótt námskeið í vinnustofu Orkuklasans í húsnæði Akademias fyrr í þessum mánuði. MYND/AÐSEND 46 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.